Ísraelíski herinn fær skipun um að stöðva skip Grétu á leið til Gaza

France24 greinir frá því, að varnarmálaráðherra Ísrael, Israel Katz, hafi skipað hernum að stöðva seglskútu sem nálgast Gaza með Greta Thunberg og ellefu öðrum um borð.

Báturinn, sem heitir Madleen, er hluti af Freedom Flotilla Coalition og sigldi frá Ítalíu 1. júní með það að markmiði að flytja mannúðaraðstoð til Gaza-ræmunnar. Katz sagði í yfirlýsingu á sunnudag:

„Ég hef gefið hernum fyrirskipun um að koma í veg fyrir að Madleen-flotinn nái til Gaza.“

Hann sendi einnig skörp skilaboð til Thunberg og annarra um borð:

„Til Grétu gyðingahatara og fylgismönnum hennar, áróðursmanna Hamas, segi ég skýrt: Snúið við, þið munuð ekki ná fram til Gaza.“

Um borð eru aðgerðasinnar frá Þýskalandi, Frakklandi, Brasilíu, Tyrklandi, Svíþjóð, Spáni og Hollandi. Einn þeirra er Rima Hassan, þingmaður ESB. Hún tilkynnti að yfir 200 evrópskir þingmenn hafi skrifað undir opið bréf til Ísraels með kröfu um að Madleen fengi leyfi til að ná til Gaza og að farmur skipsins yrði losaður.

Freedom Flotilla lýsti því yfir um helgina að báturinn hafi náð landhelgi Egyptalands og nálgist strönd Gaza. Ferðin er tilraun til að brjóta gegn sjóbanni Ísraels, sem sett var til að koma í veg fyrir vopnaflutninga til Hamas. Katz sagði:

„Ísrael mun ekki leyfa neinum að brjóta bannið hvorki á sjó, í lofti né á landi.“

Freedom Flotilla hefur áður orðið fyrir árásum. Í maí varð skipið Conscience fyrir drónaárás.

Samtímis er greint frá nýjum dauðsföllum á Gaza. Samkvæmt almannavörnum Gaza voru að minnsta kosti tíu manns drepnir við árásir Ísraelshers á sunnudag. Fólkið var á leið í hjálparmiðstöð vestur af Rafah, nálægt svæði sem rekið var af mannúðarstofnun Gaza (GHF). SÞ neitar að vinna með GHF með vísan til skorts á hlutleysi. Ísraelski herinn lýsti því yfir að hermennirnir hafi opnað eld eftir að viðvaranir voru hunsaðar og að svæðið er flokkað sem virkt stríðssvæði.

Fara efst á síðu