Hópurinn Ísland – þvert á flokka hefur boðað til nýs samstöðufundar á Austurvelli næst komandi laugardag 14. júní kl. 14.00 á Austurvelli.
(Þessi frétt er uppfærð því réttur tími er klukkan 14.00! – ekki 16.00 eins og sagt var áður).
Vinstri menn á Íslandi brugðust illir við fyrsta fundi hópsins 31. maí og sögðu friðsama fundarmenn sem ræddu um þann hnút sem galopin landamæri með tilheyrandi vandamálum ólöglegra innflytjenda eru komin í meðal annars með vaxandi ofbeldi í kjölfarið ásamt nærveru alþjóðlegra glæpamanna á landinu sem nærast á eiturlyfjasölu og mansali. Er farið að hóta lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra, þannig að málin eru komin á grafalvarlegt stig.
Hefur það vakið furðu, að jafnvel einstaka þingmenn skuli vera svo takmarkaðir í umræðu um málin að það helsta sem þeim dettur í hug er að ásaka friðsamt fólk með íslenska fána fyrir að flytja hatursorðræðu og vera rasistar.
Það langsóttasta er sjálfsagt að reyna tengja saman númer á íþróttabol eins ræðumanna við Hitler!
Slík málsmeðferð sýnir takmarkaða getu viðkomandi að taka skynsamlega og málefnalega umræðu um málin og lýsir best hatri þeirra sjálfra á funda- og málfrelsi almennings.
Hér að neðan má sjá myndskeið af fyrsta fundi hópsins: