Í gær hleyptu Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur og Gústaf Skúlason, Þjóðólfi, af stokkunum nýjum viðtalsþætti sem Íris gaf hið verðskuldaða nafn Ísafold. Meiningin er að Ísafold geti orðið vikulegur þáttur sem birtist fyrir eða um helgar. Þetta er á frumstigi en ákvörðun um samstarfið var tekið fyrir nokkru en viðtalsþættir Þjóðólfs við Írisi Erlingsdóttur hafa notið þúsunda áhorfa. Í þessum fyrsta þætti var fordæmalaus árás íslensku þjóðkirkjunnar í samstarfi við Samtökin 78 á siðmenningu landsins til umræðu. Verndari Ísafoldar er Bangsi, sem fallegur hundur Írisar heitir. Hann mun vera viðstaddur þættina eftir eigin áhuga og Íris kynnti hann í upphafi þáttarins.
Í þessum fyrsta þætti Ísafoldar var umræðuefnið Biskup Íslands, frú Guðrún Karls Helgudóttir, en hún leiðir ásamt Samtökunum 78 menningarbyltingu gegn kristnum siðum og siðmenningu á Íslandi. Íris segir það alveg á hreinu, að kirkjan sé ekki lengur kristin kirkja en biskupinn hefur verið á ferð um landið m.a. til að mála transfána fyrir utan dyr Ísafjarðarkirkju.
Vildi verða rokkstjarna – notar embættið fyrir framleiðslu eigin rokk myndskeiða
Gústaf greindi frá því að honum hafi verið sent myndskeið af rokkandi biskup og starfsmönnum kirkjunnar í nokkurs konar áramótaskaupsútgáfu. Hluti myndskeiðsins er spilað í þættinum, sjá rumble hér að neðan. Gústaf hélt fyrst að þetta væri falsað myndband en eftir athugun á síðu biskups reyndist svo ekki vera, heldur var um raunverulega kyneggjandi danssýningu biskups að ræða. Íris sagði:
„Biskupinn sagði það í viðtali að ef hún hefði ekki orðið biskup eða prestur, þá hefði hún viljað vera rokkstjarna. Mér finnst það greinilegt af allri fjölmiðlaumfjöllun um þessa manneskju er að hún gæti verið Clauster B – manneskja. Það er narsisstisti (sjálfselska, grobb, drambsemi, óhóflegar hugmyndir um eigið mikilvægi og fegurð, völd og hæfileika), svona histríónískur narsissisti sem þjáist af alvarlegri athyglissýki. Þetta getur gengið hjá venjulegu fólki t.d. fréttamönnum og fólki í sjónvarpi jafnvel rokkstjörnum sem er að einhverju leyti athyglissjúkar. En maður vill engan veginn sjá þetta hjá biskupi eða prestum.“
Ingibjörg Sólrún sagði upp vinskap sem vinurinn vissi ekkert um
Það vakti athygli að fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, móðgaðist af ádeilumyndum sem Íris Erlingsdóttir hefur gert um transbiskup sem gengur gegn sköpun Guðs og boðorðunum tíu og heldur því fram að kynin séu fleiri en tvö. Ekki nóg með það heldur eru Samtökin 78 farin að stjórna prestanámsskeiðum í kynseginfræðum og þjóðkirkjan að afnema kristna sálma og innleiða kynsegin málfar í predikunum þar sem karlkyn Guðs er fjarlægt en talað um Guð sem konu. Sjálft Faðirvorið er í hættu. Íris Erlingsdóttir segir:
„Þetta kom mér algjörlega á óvart. Það voru fréttir fyrir mig að við værum vinir. Ingibjörgu Sólrúnu finnst það sem ég hef sagt um biskupinn vera „hatursfullt…“ Að sjálfsögðu hata ég biskupinn ekki neitt. Ég vorkenni henni. Mér finnst lítilsvirðingin og fyrirlitningin sem hún ber fyrir þessu embætti og kirkjunni vera hræðilegt. Ef Ingibjörg Sólrún sér ekkert athugavert við hegðun biskups þá vil ég ekkert vera hennar vinur. Ég er bara mjög ánægð með að við skulum ekki vera vinir… Þakka þér kærlega fyrir Ingibjörg Sólrún.“

Ádeilumyndir sterkt tjáningarform
Ádeilumyndir Írisar með textum snerta áhorfandann. Hér að neðan má sjá nokkrar slíkar sem Íris hefur gert:




Bókun 35 brýtur gegn stjórnarskrá Íslands

Komið var inn á bókun 35 í þættinum en nýverið skrifaði fyrrverandi Hæstaréttardómari, Jón Steinar Gunnlaugsson eftirfarandi um málið:
„Ekki verður annað séð en að sú skipan sem felst í þessu frumvarpi standist ekki nema stjórnarskránni sé fyrst breytt og í hana sett ákvæði sem heimilar þetta. Alþingismönnum er skylt að haga störfum sínum að lagasetningu samkvæmt þeim heimildum sem stjórnarskráin veitir. Þess vegna hefur Alþingi ekki stjórnskipulega heimild til að lögfesta þetta frumvarp.“
Sjá má Ísafold í spilaranum hér að neðan: