Fyrirsögnin eru lokaorð Einars S. Hálfdánarsonar í góðri grein í Morgunblaði dagsins, þar sem hann bendir á fölsun Viðreisnar á útflutningstölum en Viðreisn telur útflutning til Asíu með viðkomu á meginlandinu sem útflutning til ESB í staðinn til að fegra tölur um viðskipti Íslands við sambandið. Að nokkur stjórnmálaflokkur dirfist að falsa útflutningstölur á þennan hátt í pólitískum ávinningi er til marks um það að upplýsingaóreiða og falsfréttir koma frá þeim sem mest ásaka aðra um slíkt.
Einar Hálfdánarson mælir fyrir um þá stefnu sem landsmenn þurfa að fylgja til að standast þessa árás Evrópusambandsins og íslensku valkyrjanna sem konar eru í hlutverk landstjóra ESB á Íslandi:
„Nú ríður á að allir taki höndum saman, hvar í flokki sem þeir standa, sem vilja ekki undirgangast erlent vald. Söguþekkingu hefur markvisst verið útrýmt af nútímavinstrimönnum, en mörgum er hún þó enn töm. Hrindum þessari ásælni Evrópusambandsins og meðhjálpara þess af höndum okkar!“
Óhætt er að taka undir þessa herkvaðningu. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn.