Ástandið í mörgum matvöruverslunum er orðið svo alvarlegt að samtök kaupmanna hvetja starfsfólk verslana til að forðast afskipti af ákveðnum málum og varar við víðtækum afleiðingum verði þróunin ekki stöðvuð. Skýrsla um ástandið á árinu 2024 sýnir að glæpir gegn verslunum hafa aldrei nokkru sinni verið meiri.
Samtök kaupmanna „Svensk Handel“ reiknar árlega út vísitölu sem sýnir hlutfall verslana sem hafa orðið fyrir þjófnaði, innbrotum, hótunum eða ofbeldi. Fyrir ár 2024 var talan 46 % fyrir allt landið sem er hæsta tala á ársgrundvelli síðan byrjað var með vísitöluna árið 2018.
Verst er ástandið í matvöruverslunum, þar á eftir koma apótek og raftækjaverslanir. Stokkhólmur toppar listann yfir staði í mestri hættu á glæpum og er vísitalan þar komin upp í 63% sem er mikil aukning frá 51% árinu áður. Þar á eftir kemur Skáne með 53% og Blekinge með 50%. Nina Jelver, yfirmaður öryggismála hjá Svensk Handel segir:
„Þetta er skelfileg þróun, en því miður getum við ekki sagt að við séum hissa. Við fáum daglega fréttir frá félagsmönnum okkar sem lýsa ástandinu. Tæplega helmingur verslana hefur orðið fyrir þjófnaði eða hótunum á árinu. Afleiðingarnar geta verið dauðlegar og á endanum er það samfélagið sem tapar.“
Hlutfall verslana sem urðu fyrir þjófnaði eða smáþjófnaði í síðustu viku jukust í 39% samanborið við 36% árið 2023. Hótanir án þjófnaðar jukust úr 24% ár 2023 í 31% 2024 í Stokkhólmi.
Margvíslegar afleiðingar
Svensk Handel hefur lengi varað við því að aukin glæpastarfsemi hafi víðtækari áhrif en á öryggi kaupmanna og starfsmanna. Sífelld afbrot leiða einnig til þess að verslanir flytji eða í versta falli að þeim verði lokað. Nina Jelver segir:
„Réttarfarskerfið verður að taka þessar tölur alvarlega. Það verður að refsa fyrir afbrot í verslunum. Ef ekkert er að gert eigum við á hættu að missa þjónustu, störf og öryggi í nærumhverfi okkar. Við höfum bent á það í nokkur ár að glæpir fari vaxandi. Stjórnmálin og réttarfarið verða að grípa til öflugra aðgerða.“
Skýrsla samtakanna á sænsku er hér að neðan: