Það er á fleiri stöðum en á Íslandi sem fólk hefur áhyggjur af galopnum landamærum Schengen. Núna eru Hollendingar orðnir svo þreyttir á stjórnleysinu að þeir eru farnir að grípa til eigin aðgerða og sjá sjálfir um landamæragæsluna. Um helgina setti hópur hollenskra ríkisborgara óvænt upp eftirlitsstöð á landamærunum að Þýskalandi til að mótmæla hömlulausum straumi af ólöglegum innflytjendum. Einn aðgerðasinnanna sagði við Algemeen Dagblad:
„Þegar ekkert gerist, þá verðum við að málin í eigin hendur.“
Um það bil tólf menn, búnir endurskinsvestum og vasaljósum, stöðvuðu bíla við N366 þjóðveginn milli Ter Apel og þýska bæjarins Rütenbrock sem er mikilvægur komustaðar fyrir innflytjendur. Að sögn þátttakenda var aðgerðin framkvæmd vegna þess að yfirvöld gátu ekki að tryggt landamærin.
Einn bílanna sem stöðvaður var reyndist þó vera í eigu þýsku lögreglunnar, sem brást skjótt við og skipaði hópnum að yfirgefa þýska jörð. Aðgerðasinnarnir færðu þá einfaldlega stöð sína á bílastæði á hollensku hliðinni og héldu áfram eftirlitsaðgerðum þaðan.
Stjórnmálamenn og lögreglan haf gagnrýnt aðgerðina harðlega. Sveitarfélagið Westerwolde og hollenska lögreglan segja í sameiginlegri yfirlýsingu að „meðborgurum sé óheimilt að stöðva bíla, því það skapi mjög hættulegar aðstæður“ og sé „óásættanlegt.“
Geert Wilders, leiðtogi PW-flokksins hrósar hins vegar aðgerðinni og skrifaði á X:
„Frábært framtak! Ef Schoof og VVD senda ekki strax herinn í stórum stíl, verðum við að vinna verkið sjálf. Ég mun með ánægju taka þátt í næstu aðgerð.“
Eva Vlaardingerbroek hefur mikið rætt um innflytjendamálin (sjá X að neðan). Hún telur að ástandið gæti þróast upp í innanlandsstyrjöld. Í innanlandsstyrjöld berjast yfirleitt tveir aðilar nema í Evrópu, – þar berst aðeins annar aðilinn.