Greta segir Ísraelsmenn illmenni en þiggur brauð þeirra með bros á vör

Greta Thunberg hatar Ísrael og segir þá illmenni jarðar. Samt tók hún skælbrosandi við brauði úr hendi hermanns illmennskunnar. Klukkan tvö aðfaranótt mánudags fóru ísraelskir hermenn um borð í seglskipið Madleen. Tólf manns voru um borð, þar á meðal atvinnumótmælandinn Greta Thunberg, sem reyndi að komast inn í Gaza. Ísrelski herinn tók hjálparsendingu aðgerðarhópsins og sendir áfram til Gaza.

Áður en Greta fór í þessa ferð tjáði hún sig margsinnis á samfélagsmiðlum um hvílík illmenni stjórni Ísrael. Greta hefur lagt loftslagsmálin á hilluna til að verða atvinnumótmælandi gegn Ísrael með þá kröfu að Ísraelsmenn láti hryðjuverkasveitir Hamas í friði á Gaza.

Ferð aðgerðasinnana mistókst þegar hermenn Ísraelshers tóku bátinn í sína vörslu. Aðgerðasinnarnir hafa birt mynd á Telegram af sér með uppréttar hendur sem tekin var í eftirlitsmyndavél um borð. Skömmu síðar slitnaði samband við skipið.

Þrátt fyrir allan áróður gegn Gyðingum, þá tók Gréta á móti brauði og drykk úr hendi ísraelska hermannsins. Utanríkisráðuneytið gaf út eftirfarandi tilkynningu:

„Greta Thunberg er á leiðinni til Ísraels í öruggum höndum og í góðu skapi.“

Sjálfsmyndatöku lokið á lúxusskútunni

Utanríkisráðuneyti Ísraels segir að allir áhrifavaldar um borð í skipinu séu óhultir. Hjálparföng, þar á meðal matur, sem var um borð í seglskútunni verður sendur til Gaza. Ráðuneytið kallar skútuna „Sjálfsmyndatökuskútuna“Selfie Yacht – og vísar til þess að aðgerðasinnarnir hafi lítið gert annað en að taka sjálfsmyndir á lúxusskútu sinni. Utanríkisráðuneytið skrifar:

„Þau hafa fengið vatn og brauð. Sýningunni er lokið.“

Varnarmálaráðherra Ísraels, Israel Katz, segir Gretu Thunberg og vini hennar vera stuðningsmenn Hamas. Ráðherann segist muna sýna skipverjum myndbandsupptökur af hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael þann 7. október 2023, áður en aðgerðasinnunum verður flogið til baka til heimalanda sinna.

Fara efst á síðu