Gagnrýni á Biden: Stríðsaðgerð í bága við stjórnarskrá Bandaríkjanna

Að leyfa Úkraínu að beita bandarískum langdrægum vopnum gegn Rússum er „stríðsaðgerð sem er í bága við stjórnarskrána“ segir þingmaðurinn Thomas Massie. Massie er fulltrúi repúblikana frá Kentucky og hefur verið þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings frá árinu 2012.

Bandaríski þingmaðurinn Thomas Massie heldur því fram að Biden-stjórnin fremji glæp þegar hún heimilar Úkraínu að nota langdrægar eldflaugar til að ráðast á skotmörk í Rússlandi. Slíkt stjórnarskrárbrot ætti að leiða til ríkisréttar yfir forsetanum.

Thomas Massie skrifar á X:

„Með því að heimila langdrægar eldflaugaárásir inn í Rússland er Biden að fremja stríðsaðgerð í bága við stjórnarskrána sem stofnar lífi allra bandarískra ríkisborgara í hættu.“

Thomas Massie skrifar áfram:

„Þetta er glæpur sem gæti leitt til ríkisréttarhalda en raunveruleikinn er sá að hann (Biden) er geld brúða djúparíkisins.”

Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna hefur aðeins þingið vald til að hefja stríð.