Eitt hið furðulegasta við kosningar í Ameríku er að kjósendur í 15 fylkjum þurfa ekki að framvísa nafnskírteinum; ID Identification þegar þeir kjósa. Þetta virkar eins og opin landamæri; bara sturta inn fólki. Bandaríkin hafa verið undir stjórn demókrata og repúblikana; uni-party sem hafa verið á mála lyfjarisa; Big-Pharma og hermaskínu Military Complex með falsmiðla og Hollywood veifandi skotti. Helstu valdasetur eru Washington DC, New York á austurströndinni; Los Angeles og Hollywood á vesturströndinni. Þar á milli er Ameríka að mestu Rauð. Árið 2016 hófst uppreisn amerískrar alþýðu sem hefur leitt til yfirtöku Donald Trump á Repúblikanaflokknum í andstöðu við lyfjarisa og endalausar styrjaldir hermaskínunnar.
FYLKIN SKILRÍKJALAUSU …
Fimmtán “skilríkjalaus fylki“ eiga það sammerkt að hafa meira og minna verið undir stjórn demókrata; viðhaldið valdakerfi demókrata. Skilríkjalausu fylkin eru Kalifornía, Delaware, Hawai, Illinois, Maine, Maryland, Maccachusetts, Minnesota, Nevada, New Jersey, Nýja Mexico, New York, Oregon, Pennsylvania, Washington og Vermont. 35 fylki krefjast nafnskírteina meira og minna rauð fylki repúblikana. Sex fylki krefjast ekki myndar; photo ID á nafnskírteinum; Arizona, Colorado, Wyoming, N-Dakota, V-Virginía og Virginía. Þannig hefur verið tiltölulega auðvelt að svindla í 21 ríki. Trump vann stórsigur; landslide too Big to Rig. Þar á meðal hrundi hinn Blái veggur; Blue Wall verka og iðnverkafólks. Fakt-tékkarar; fact-checkers faksmiðla stimpla meðfylgjandi kort falsfrétt. Það er að því leyti rétt að Trump vann tvö “skilríkjalaus fylki“; Pennsylvaníu og Nevada[Las Vegas]!!! Hafa ber í huga að í Pennsylvaínu þurfa einungis fyrsta-skiptis-kjósendur að sýna skilríki! Fact-tékkarar bera jafnan fram hálfsannleika.
OFURTÖK DEMÓKRATA Á TALNINGASTÖÐUM
Ríkin sem krefjast ekki skilríkja eiga það sammerkt að demókratar hafa ofurtök á talningastöðum í anda Stalíns; “það eru ekki sá sem greiðir atkvæði sem skiptir máli, þeir sem telja ráða.“ Lykilþættir í kosningasvindli vestanhafs síðustu áratugi eru póstatkvæðin; mail-in-ballot & Domino-maskínur; Domino-machines sem Chazes heitinn kom fram með í Venezúela. Maskínur sem hafa komið venezúelabúum á vergang svo sem Íslendingar þekkja. Það féllu 14 milljón “ný atkvæði“ Biden í skaut 2020 í skjóli covid! Til hvers var covid … Spyrjið kæru vinir.
UPPREISN Í KALIFORNÍU
Kalifornía og Hollywood leiða guðlausan glóbalizma og skilríki. Kalifornía er og hefur verið eins-flokks-ríki til margra ára. Á útmánuðum samþykktu íbúar Huntington Beach að kjósendur framvísi nafnskírteini. Þetta var uppreisn fólksins í litla strandbænum sem magnaði rauða uppreisn. Ríkissaksóknari og innanríkisráðherra fylkisins höfðuðu mál gegn litla bænum. Eitthvað hefur það gengið erfiðlega því Gavin Newsom undirritaði lög 14. október sem banna starfsfólki kjörstaða að fara fram á nafnskírteini að viðlagðri refsingu. Rauða Bylgjan varð að tsumani í Kaliforníu svo sem sjá má af kortinu.
ÞAÐ ÁTTI AÐ SKIPTA BANDARÍSKRI ÞJÓÐ ÚT
Hælisbransinn í Ameríku var tæki til að skipta bandarískri þjóð út fyrir ólöglega innflytjendur; illegal aliens líklega um 25 milljónir í tíð Biden og Harris. Styrjaldir & plágur glóbalizta nútíðar hafa komið róti á samfélög um allan heim. Í Ameríku voru ólöglegir innflytjendur; illegal aliens fluttir á kjörstaði í rútum frá hótelum á fullri framfærslu teknir fram yfir heimafólk sem var gert að bíða í löngum röðum. Af hverju er fólk hissa að Ameríka hafi sagt NEI við plotti guðlausra glóbalizta að taka niður vestræna kristna siðmenningu. Þetta er málefni til að ræða en það er líklega til of mikils ætlast undir rúvízku alræði …