Pólitísku mótmælin í Los Angeles eru til að minna Bandaríkjamenn á að demókratar séu enn til og flokkurinn ekki alveg útdauður. Brottrekstur ólöglegra innflytjenda er tylliástæða. Verið er að sýna vald demókrata með ofbeldi keyptra atvinnuóeirðaseggja, þar sem leitað er að koma höggi á Donald Trump og stjórn repúblikana. Allt er eyðilagt sem á vegi verður, ráðist á verslanir og þeim rænt, kveikt í húsum og bílum. Reynt verður að láta mótmælin breiðast út til annarrar borga og skapa óöld í Bandaríkjunum svo þau mál sem demókratar töpuðu í kosningunum verði endurreist með ofbeldi sem í allra versta falli gæti endað í borgarastyrjöld.
Þetta þekkja Bandaríkjamenn vel frá stríði Suður og Norðurs, þegar demókratar studdu Ku-Klux-Klan og börðust fyrir áframhaldandi þrælahaldi svartra og kynþáttaaðskilnaði. Þá stöðvaði repúblikaninn Abraham Lincoln og repúblikanaflokkurinn ofbeldið og komu á friði. Markmið Donald Trumps er hið sama, stöðva skrílslætin og eyðilegginguna og halda götum Bandaríkjanna öruggum fyrir almenning.
Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, sem Trump kallar Newscum, hefur ekki þóttst vita um nein alvarleg mótmæli og gerði ekki neitt til að reyna að stöðva skrílslætin. Friðsamleg mótmæli er frasi jafnaðarmanna og sósíalista þegar þeir hleypa þessum öflum lausum. Newsom hótar að kæra Trump fyrir að hafa sent þjóðvarliðið á staðinn til að kveða niður óeirðirnar í trássi við fylkisstjórann. Segir hann Trump vera einræðisherra sem brjóti stjórnarskrána. Newsom hefur metnað til að verða forseti Bandaríkjanna og hann vill breyta Bandaríkjunum í eitt allsherjar Kaliforníuríki með allri þeirri spillingu sem þar ríkir og slær Degi B. Eggertssyni og Reykjavíkurborg ekkert eftir.
Margir muna, þegar skógareldarnir geisuðu í Los Angeles í byrjun ársins og vatnshanar tómir, þegar slökkviliðsmennirnir komu, vegna vanrækslu yfirvalda. Það gæti því allt eins farið að Gavin Newsom yrði sjálfur kærður fyrir að bregðast skyldum sínum að vernda almenning og eigur og halda uppi lögum og reglu.

Hér að neðan má sjá nokkur myndskeið frá óeirðunum. Margir óeirðaseggja voru grímuklæddir og veifuðu erlendum fánum eins og þeim mexíkanska:
WATCH: Media Shrug Off LA Rioters as ‘Peaceful People’https://t.co/OjgyFYJPC7 pic.twitter.com/drB1NkJio3
— Washington Free Beacon (@FreeBeacon) June 9, 2025
SUPERCUT!
— Tom Elliott (@tomselliott) June 9, 2025
Corporate media: These murderous riots are actually mostly peaceful pic.twitter.com/9Aig54BoH2