Elon Musk fær daglega 17 – 18 þúsund morðhótanir frá öfgavinstri mönnum

Það ætti að vera ljóst núna að demókratar vilja sjá Elon Musk feigan. Elon Musk er án efa einn hugrakkasti maður okkar kynslóðar, en samt eru demókratar í herferð gegn honum til að drepa hann. Hvar eru viti bornir demókratar? Eru einhverjir eftir? Hvenær ætla þeir að fordæma þessar morðhótanir?

Á sunnudagskvöldið sagði Elon Musk við áhorfendur í Wisconsin að hann fengi 17.000 morðhótanir á dag! Demókratar vilja hann dauðan vegna þess að hann studdi Trump forseta og er að skera burtu spillingu og ónauðsynleg ríkisútgjöld. Lygar vinstri manna munu að lokum særa einhvern.

Elon Musk sagði í ræðu í Wisconsin (sjá myndband að neðan):

Það voru ansi margar morðhótanir, ég verð að segja ykkur það. Öryggisteymið mitt sagði: Þetta hefur í raun minnkað frá því í gær til dagsins í dag. Þeim fækkaði úr 18.000 í 17.000. Svo … kannski er þetta að lagast. En þið getið séð hversu brjálað sumt af þessu fólki er.“

Eins og mennirnir tveir sem reyndu að myrða Trump forseta. Þeim tókst báðum tveim næstum að gera það. Svo þetta er raunverulegt. Þetta er ekki eins og einhver ímyndun.“

Fara efst á síðu