Algjört rafmangsöngþveiti bíður Svía næsta vetur

Sænska Viðskiptablaðið skrifar að Suður-Svíþjóð standi frammi fyrir alvarlegum orkuskorti næstkomandi vetur og vísar til nýjustu skýrslu sænska Orkunetsins (sjá pdf að neðan), þar sem segir að það vanti jafngildi sjö kjarnorkuvera upp á að nægt rafmagn verði til staðar!

Áætlað er að orkusvæðin SE3og SE4, sérstaklega Skåne og suðurhluti Gautalands, muni vanta 7.700 MWh/klst. sem jafngildir rafmagnsframleiðslu sjö kjarnorkuvera. Á sama tíma varar sænska Orkunetið við því að möguleikar til að flytja inn rafmagn geti verið takmarkaðir, þar sem nágrannalöndin búi einnig við skort á rafmagni á köldum vetrardögum þegar ekkert blæs.

Malin Johansson hjá IKEM sem er fulltrúi orkufrekra fyrirtækja segir að ekki sé hægt að treysta á getu nágrannalandanna. Hún gagnrýnir einnig tillögurnar um aukinn sveigjanleika neytenda og segir í viðtali við Viðskiptablaðið:

„Hvers vegna eigum við að vera að búa til markað þar sem iðnaður verður neyddur til að verða sveigjanlegur? Iðnaðurinn þarf að geta framleitt allan sólarhringinn til að bæta vöxt og velferð í Svíþjóð.“

Þar að auki er flutningsgetan frá raforkusvæði SE3 til SE4 oft ófullnægjandi við hámarksálag sem myndar flöskuhálsa og hækkun rafmagnsverðs í suðri.

ESB varar við aukinni hættu á rafmagnsskorti þegar framleiðsla jarðefnaeldsneytisorku er hætt hraðar en ný afkastageta bætist við. Johansson segir:

„Það eru ekki fréttir, því ef það er logn í Danmörku, þá er einnig logn á Skáni.“

Fara efst á síðu