Svokallaðar brottvísanir ungmenna eru smánarblettur, Svíþjóðardemókratar eru hræðilegir og fjölga verður innflytjendum til Svíþjóðar. Þetta er mat fjármálamannsins Daniels Sachs, varaformanns Open Society, umdeildra samtaka sem George Soros stofnaði.
Sachs kemur úr þekktri kaupmannaætt og langafi hans var Josef Sachs sem stofnaði NK-verslanakeðjuna í upphafi 20. aldar. Áður var Sachs forstjóri fjárfestingafélagsins Proventus en rekur í dag P Capital sem stýrir einkareknum lánasjóðum. Undanfarin fimmtán ár hefur hann einnig rekið Daniel Sachs Foundation sem vinnur að því að „endurnýja lýðræðið“ með því að styðja ungt hæfileikafólk frá svo kölluðum viðkvæmum hverfum.
Systir hans, Fanny Sachs, er gift Marcus Wallenberg, stjórnarformanni Wallenberg Investments AB, þar sem Daniel Sachs situr jafnframt í stjórn.
– Til að reka farsæl fyrirtæki er algjörlega lykilatriði að samfélagið búi við gagnkvæmt traust, félagslegan hreyfanleika, réttarríki og frjálsar vísindarannsóknir. Þetta er ekki eitthvað sem stjórnmálin geta séð um ein og sér. Fyrirtækin hafa augljósa eiginhagsmuni af þessu og skýrt hlutverk að gegna, segir hann í viðtali við Svenska Dagbladet. Þar harmar hann jafnframt að Svíþjóð hafi fengið ríkisstjórn sem geri eitthvað jafn óvenjulegt og að setja sænsku þjóðina í fyrsta sæti.
– Við þurfum fleiri innflytjendur til Svíþjóðar, ekki færri. Við erum algjörlega háð innflytjendum þegar kemur að vinnumarkaði okkar og samkeppnishæfni, segir hann við blaðið.
Er illa við Svíþjóðardemókrata
Þrátt fyrir að það sé vinstrivængurinn sem hafi hvað mest verið sakaður um gyðingahatur – einkum eftir fjöldamorð hryðjuverkasamtakanna Hamas og stríðið sem fylgdi í kjölfarið – þá sður blaðamaður Svenska Dagbladed Sachs um Svíþjóðardemókrata:
– En Svíþjóðardemókratar? Í ljósi gyðinglegs uppruna þíns og sögu flokksins varðandi gyðingahatur. Hvað finnst þér um þá?
Daniel Sachs starir yfir borðið. Síðan biður hann um stutt hlé og yfirgefur herbergið. Nokkrum mínútum síðar snýr hann aftur.
– Ef þú vilt endilega fá svar get ég sagt þetta: Svíþjóðardemókratar eru flokkur sem stendur fyrir gildi sem ég deili ekki. Punktur.
Sachs segist sannfærður um að Svíþjóð myndi hrynja „án allra þeirra Svía af erlendum uppruna sem halda samfélaginu gangandi og auðga landið á margvíslegan hátt.“
