Yfir 24 þúsund kjósendur árið 2020 voru ekki bandarískir ríkisborgarar – eftir að rannsaka 32 milljónir atkvæða. Trump: Ég vann kosningarnar!

Bandaríska manntalsskrifstofan, U.S. Census Bureau, hefur í nýrri greiningu komist að þeirri niðurstöðu að yfir 24 þúsund manns sem skráðir voru sem kjósendur í forsetakosningunum árið 2020 hafi ekki verið bandarískir ríkisborgarar þegar þeir greiddu atkvæði. Þetta kemur fram í nýrri opinberri skýrslu stofnunarinnar, „Noncitizen Voting in the 2020 Election, A Beginning Analysis“, sem birt var 18. ágúst. Um er að ræða fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar og enn á eftir að greina meira en 32 milljónir kjósenda. Skýrsla U.S. Census Bureau – Noncitizen Voting in the 2020 Election

Donald Trump Bandaríkjaforseti brást við niðurstöðunum og sagði þær staðfesta það sem hann hefur lengi haldið fram um ólöglega þátttöku erlendra ríkisborgara í kosningunum 2020.

„Manntalsskrifstofan hefur byrjað að bera kjósendaskrárnar frá 2020 saman við ríkisborgaraskrár sínar,“ sagði Trump og vísaði til þess að meira en 24 þúsund einstaklingar hefðu þegar verið greindir sem erlendir ríkisborgarar. Hann bætti síðan við: „ÉG VANN KOSNINGARNAR!“

Trump krefst þess jafnframt að þingið samþykki SAVE America Act, sem ætlað er að herða kröfur um sönnun ríkisborgararéttar og persónuskilríki við kosningar.

160 milljónir greiddu atkvæði

Niðurstöður manntalsskrifstofunnar eru athyglisverðar. Nærri 160 milljónir manna greiddu atkvæði í forsetakosningunum 3. nóvember 2020. Stofnunin segir að í fyrstu greiningunni hafi tekist að staðfesta með mikilli vissu að meira en 128 milljónir kjósendaskráa tilheyrðu bandarískum ríkisborgurum.

En yfir 24 þúsund skrár reyndust samkvæmt greiningunni tilheyra einstaklingum sem voru ekki bandarískir ríkisborgarar þegar kosningarnar fóru fram. Enn á eftir að greina yfir 32 milljónir kjósendaskráa.

Manntalsskrifstofan orðar niðurstöðuna sjálf þannig að meira en 24 þúsund kjósendur tengist stjórnsýslugögnum sem gefi „með mikilli vissu“ til kynna að þeir hafi ekki verið ríkisborgarar.

Flestir fundust í Kaliforníu

Skýrslan birtir einnig skiptingu eftir ríkjum. Kalifornía er efst með um 4.300 kjósendur sem greiningin flokkar sem erlenda ríkisborgara. Þar á eftir koma Texas með um 2.500, Flórída með 1.800, New York með 1.700 og Arizona með 1.100. Í Illinois, Pennsylvaníu, Washington og New Jersey eru um eitt þúsund í hverju ríki samkvæmt greiningunni. Í Michigan eru þeir um 600, Wisconsin 500 og Georgíu 400. Tölurnar eru námundaðar af manntalsskrifstofunni til að vernda persónuupplýsingar.

Manntalsskrifstofan gat einnig tengt um 71 prósent þessara einstaklinga við skrár bandarísku innflytjendastofnunarinnar USCIS þar sem fæðingarland var skráð.

Stærsti hópurinn var fæddur í Mexíkó, um 3.800 manns. Þar á eftir komu Kanada með um 950, Jamaíka og Filippseyjar með um 900 hvort land, Þýskaland með 700 og Bretland með 650. Um 6.900 einstaklingar höfðu ekkert fæðingarland skráð í þeim gögnum sem tengd voru saman.

63.800 fyrrverandi handhafar grænna korta hreinsaðir út

Það sem gerir rannsóknina sérstaklega athyglisverða er að niðurstaðan byggist ekki einungis á frásögn einstaklinganna sjálfra. Manntalsskrifstofan hefur aðgang að umfangsmiklum stjórnsýslugögnum alríkisstjórnarinnar, meðal annars frá bandarísku skattstofunni IRS, innflytjendaeftirlitinu ICE, USCIS og almannatryggingastofnuninni Social Security Administration.

Við greininguna voru meðal annars notaðar upplýsingar um græn kort, vegabréfsáritanir, erlenda námsmenn, brottvísunarmál, DACA-leyfi og skráningar hjá almannatryggingakerfinu. Síðan var sérstaklega leitað að gögnum sem gætu sýnt að viðkomandi hefði öðlast bandarískan ríkisborgararétt áður en hann greiddi atkvæði. Það nægði ekki að einstaklingur fyndist í gömlum innflytjendaskrám til þess að manntalsskrifstofan teldi hann erlendan ríkisborgara árið 2020. Stofnunin fann til dæmis um 63.800 einstaklinga sem höfðu áður verið handhafar grænna korta en höfðu öðlast bandarískan ríkisborgararétt áður en kosningarnar fóru fram. Þeir voru allir teknir út úr hópi erlendra ríkisborgara.

Til þess að einstaklingur væri talinn meðal þeirra rúmlega 24 þúsund þurfti annars vegar að vera til opinber stjórnsýsluskrá sem benti til þess að hann væri ekki ríkisborgari og hins vegar máttu ekki finnast gögn sem sýndu að hann hefði öðlast ríkisborgararétt fyrir kosningarnar. Manntalsskrifstofan segir að yfir 24 þúsund kjósendur hafi uppfyllt þetta skilyrði.

32 milljónir kjósenda bíða rannsóknar

Greiningin notar landsbundna kjósendaskrá frá DataClear sem byggir á kjörskrám og kosningasögu sem safnað er frá einstökum ríkjum Bandaríkjanna. Manntalsskrifstofan bar gögnin saman við opinberar tölur Election Assistance Commission. DataClear-gögnin náðu yfir um 146,7 milljónir af tæplega 159,9 milljónum greiddra atkvæða, eða 91,7 prósent þeirra. Manntalsskrifstofan kallar greininguna „A Beginning Analysis“ – upphafsgreiningu.

Athyglisverðasta talan í skýrslunnieru þær 32 milljónir kjósenda sem enn á eftir að greina. Trump fullyrðir að fjöldi erlendra ríkisborgara muni aukast verulega þegar þær skrár hafa verið rannsakaðar.

Biden vann kosningarnar með 306 kjörmenn gegn 232 og forskot hans í nokkrum lykilríkjum var mun meira en sá fjöldi sem manntalsskrifstofan hefur enn sem komið er greint þar sem líklega erlenda ríkisborgara.

Niðurstaðan er pólitískt sprengiefni

Kosningaréttur í bandarískum alríkiskosningum er bundinn við bandaríska ríkisborgara. Núna hefur bandarísk alríkisstofnun sjálf birt greiningu þar sem meira en 24 þúsund kjósendaskrár eru tengdar einstaklingum sem hún telur með mikilli vissu hafa verið erlenda ríkisborgara þegar atkvæðagreiðslan fór fram.

Rannsókninni er auk þess langt frá því lokið. Endanleg niðurstaða fæst, þegar búið verður að greina rúmlega 32 milljón kjósenda sem eftir er að sannreyna. Þá kemur í ljós hvort niðurstaðan getur breytt úrslitum forsetakosninganna.