
Bandaríski rithöfundurinn James Stephen Lindsay hefur skilgreint vókismann sem marxisma nútímans sem er að grafa undan Vesturlöndum og breyta samfélögum okkar.
Hann segir að verði ekki vókstefnan stöðvuð, þá verði örlög almennings á Vesturlöndum þau sömu og almennings í Kína. Verið sé að koma kommúnísku samfélagi Kína á Vesturlöndum.
Almenningur verða þrælar. Öreigar. Og eiga að sjálfsögðu að vera hamingjusamir og tilbiðja vókismann.
„Vók er marxismi sem hefur verið skapaður til þess að ráðast á Vesturlönd. Sá sem skilur það ekki getur ekki brugðist við á réttan hátt. Það er ekki hægt að lækna vók sem mun gera út af við löndin. Vók mun gera út af við alla Evrópu og við munum hafa mjög langa sjálfbæra inngilda framtíð án nokkurs frelsis. Vegna þess að markmiðið er að gera okkur að því sem þeir kalla alþjóðlega ríkisborgara.
Hafið þið heyrt það áður? Þetta er tóm þvæla, það er ekkert til sem heitir alþjóðlegt fullveldi og þar af leiðandi getur heldur ekki verið til neinn alþjóðlegur ríkisborgararéttur. Það eru engin tengsl vegna þess að það er enginn stjórnandi. Og við viljum engan sem stjórnar öllum heiminum. Þetta er tóm della.
En ef þið lesið fræðin þeirra þá segja þeir ykkur frá því hvað það er að vera alþjóðlegur ríkisborgari. Ég er ekki að grínast, þeir segja það sjálfir að hver sá sem styður 17 haldbær þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna fyrir Agenda 2030, hann/hún er alþjóðlegur ríkisborgari.
Þeir spyrja hver eru réttindi alþjóðlegra ríkisborgara, þetta er í bók um menntun alþjóðlegu ríkisborgaranna sem kom út fyrir tveimur árum. Og svarið einni málsgrein síðar er: Við höfum ekki svo mikinn áhuga á réttindum alþjóðlegra ríkisborgara. Þetta snýst frekar um ábyrgð alþjóðlegra ríkisborgara.“
Með öðrum orðum: Þrældómur
Lindsay ræðir síðan um kínverska skipulagið sem á að vera módel fyrir allan heiminn og bendir á að jafnvel milljarðamæringar hverfa ef þeir gagnrýna alræði öreiganna í Kína.