Svíþjóð: Vinstriflokkurinn (kommúnistar) nær miklum árangri í kosningunum í nokkrum af svokölluðum viðkvæmum hverfum Svíþjóðar. Í hlutum Rinkeby og Tensta fær flokkurinn meira en helming atkvæða — og í Järva virðast Sósíaldemókratar vera að missa stöðu sína sem stærsti flokkurinn.
Fylgi innflytjendaflokksins Nyans hefur hrunið og missir flokkurinn nær allan stuðning sinn í innflytjendagettóunum. Ljóst er hvaða flokkur nýtur góðs af því: Vinstriflokkurinn.
Í kjördeildinni Tensta Centrum fær Vinstriflokkur 54,3 prósent atkvæða í þingkosningunum. Sósíaldemókratar eru langt á eftir með 36,8 prósent samkvæmt bráðabirgðatölum.
Vinstriflokkurinn hefur einnig tekið forystuna í Rinkeby Centrum. Þar hefur fylgi hans aukist um 22,5 prósentustig frá kosningunum 2022 og er nú 51 prósent. Sósíaldemókratar fá 39,7 prósent .
Árangurinn sést einnig þegar atkvæði úr Järva í norðvesturhluta Stokkhólms eru lögð saman. Þegar talið hefur verið í 36 af 38 kjördeildum er Vinstriflokkurinn með 40,4 prósent, samanborið við 38,5 prósent Sósíaldemókrata. Í síðustu þingkosningum fékk Vinstriflokkurinn 26,6 prósent.
Flokkurinn bætir einnig verulega við sig í Malmö. Í Rosengård centrum fær hann 41,2 prósent í þingkosningunum, sem er aukning um 28,6 prósentustig. Þar halda Sósíaldemókratar þó fyrsta sætinu með 54 prósent.
Í sveitarstjórnarkosningunum hefur Vinstriflokkurinn orðið stærri en Sósíaldemókratar í Rosenård. Flokkurinn fær 46,2 prósent á móti 45,7 prósentum Sósíaldemókrata — munurinn er fimm atkvæði. Á sama tíma hefur fylgi Nyans í kjördeildinni hrunið niður í 0,1 prósent samkvæmt úrslitum sveitarstjórnarkosninganna. Samtals fá því vinstri menn 91,9 prósent atkvæða í sveitastjórn Rosenård. Bæði kommúnistar og kratar höfðu uppi mikinn áróður til múslima í Svíþjóð á arabísku.
Þegar litið er á „viðkvæmu hverfin“ í heild eru Sósíaldemókratar enn stærstir. Samkvæmt samantekt Dagens Nyheter fær flokkurinn 39,9 prósent. Vinstriflokkurinn nær 28,3 prósentum eftir aukningu um 14 prósentustig, sem þýðir að fylgi hans hefur nær tvöfaldast.
Samantektin byggir á stöðu talningar á mánudagsmorgni, þegar talið hafði verið í 305 af þeim 311 kjördeildum sem DN tengdi við „viðkvæmu hverfin“.
Alexandra Mattsson, oddviti Vinstriflokksins í borgarstjórn Stokkhólms, segir flokkinn hafa lagt mikla áherslu á að ganga í hús í kosningabaráttunni.
„Við höfum verið mikið úti í Järva og bankað upp á hjá fólki alla kosningabaráttuna,“ segir hún við Mitt i.
Að hennar sögn hefur boðskapur flokksins um húsaleigu, húsnæðismál og hátt matvælaverð náð til kjósenda.
