Vindorkuhneyksli í Þýskalandi: Sowitec gjaldþrota

Samtímis og orkumálaráðherra skálar í kampavíni með vindorkufurstum fyrir nýjum vindmyllum á Vaðölduveri, fer eitt af stærrri vindorkufyrirtækjum í Þýskalandi á hausinn. Þýska fyrirtækið Sowitec, sem þróar vind- og sólarorkuverkefni, er komið í gjaldþrot. Það skilur eftir sig verkefnasafn með um 32 gígavatta áætluðu afli, sem jafngildir um 5.000 vindmyllum. Það er talsvert meira en samanlagt uppsett afl vindorkuvera í Svíþjóð, sem er um 18 gígavött (flestar reknar með tapi).

Gjaldþrotaskipti á móðurfélaginu og nokkrum dótturfélögum þess hófust 1. september. Félögin höfðu þegar óskað eftir gjaldþrotaskiptum í júlí vegna greiðsluþrots og þess að skuldir þeirra voru umfram eignir. Þetta kemur fram í umfjöllun Affärsvärlden, sem vísar til gagna úr gjaldþrotamálum félaganna.

Skuldir móðurfélagsins námu 33 milljónum evra í árslok 2024, en Sowitec Operation skilaði tæplega 14 milljóna evra tapi sama ár.

Sowitec var stofnað árið 1993 og hefur í rúm 30 ár þróað verkefni á sviði veðurháðrar raforkuframleiðslu. Viðskiptalíkanið felst í að finna hentugt land, afla leyfa og selja verkefnin síðan áfram til fjárfesta og orkufyrirtækja. Starfsemin er því áþekk starfsemi sænskra verkefnaþróunarfyrirtækja á borð við Eolus Vind og OX2.

Nú eru til sölu verkefni með samtals um 32.000 megavatta áætluðu afli í Þýskalandi, Argentínu, Brasilíu, Kólumbíu og Mexíkó. Þar af eru aðeins um 330 megavött í Þýskalandi. Að mestu er um að ræða réttindi til uppbyggingar orkuvera, en ekki fullbúin orkuver.

Með um 200 starfsmenn réð Sowitec því yfir verkefnasafni sem að afli til var stærra en öll vindorkuver Svíþjóðar samanlagt. Engu að síður neyddist fyrirtækið til að gefast upp þegar tap og skuldir jukust.

Christian Sandström, sérfræðingur Affärsvärlden, bendir á að fyrirtæki sem hafi lengi notið góðs af uppbyggingu vindorku geti fljótt setið uppi með verðlaus verkefni þegar markaðurinn mettast.

Lokuðu kjarnorkuverunum – lögðu áherslu á vindorku

Orkustefna Þýskalands hefur tekið grundvallarbreytingum frá því að Angela Merkel og ríkisstjórn hennar knúðu fram ákvörðun um að hætta kjarnorkuframleiðslu. Kjarnorkuslysið í Fukushima varð veigamikil röksemd fyrir þeirri ákvörðun, ásamt metnaðinum til að færa orkuöflun landsins í umhverfisvænni farveg.

Í apríl 2023 var síðustu þremur kjarnorkuverunum lokað og þar með lauk kjarnorkuframleiðslu í landinu. Samhliða því varði þýska ríkisstjórnin miklum fjármunum til uppbyggingar vind- og sólarorku. Án raforkuframleiðslu sem hægt er að stýra eftir þörfum verður raforkukerfið óstöðugt og háð veðri og vindum.

Skiptastjórinn reynir nú að selja hluta starfseminnar á meðan reksturinn heldur áfram. Markmiðið er að breyta framtíðarverðmæti verkefnanna í fé sem renni til kröfuhafa. Affärsvärlden bendir á að verkefnaþróunarfyrirtæki hafi lengi notið góðs af uppbyggingu vindorku, en að stórt verkefnasafn geti fljótt orðið verðlaust þegar markaðurinn mettast.