Íbúar í þýska þorpinu Oberwiera segja frá svefntruflunum og streitu eftir margra ára kvartanir. Málið gæti skapað fordæmi fyrir önnur svæði Þýskalands, en ákveðið hefur verið að rífa nútíma vindmyllu eftir ítrekuð hávaðavandamál sem ekki tókst að leysa.
Þegar ný vindmylla var tekin í notkun skammt utan við litla þorpið Oberwiera í austurhluta Þýskalands vöknuðu vonir um bæði loftslagsvæna raforkuframleiðslu og auknar tekjur fyrir sveitarfélagið. Vindmyllan, sem kostaði um tíu milljónir evra og var á þeim tíma sú hæsta í Saxlandi, var talin geta séð allt að 5.000 heimilum fyrir rafmagni.
En skömmu eftir að rekstur hófst fóru kvartanir að berast. Íbúar sögðust verða fyrir stöðugu lágtíðni suði sem raskaði svefni og lífsgæðum. Bæjarstjórinn Holger Quellmalz segir að íbúar hafi leitað til sín í örvæntingu. Margir sendu bæjarstjóranum skilaboð: „Holger, ég þoli þetta ekki lengur.“
Ekki hægt að losna við hljóðið
Ein þeirra sem varð fyrir áhrifum er Sarah Hahn, sem flutti í þorpið ásamt eiginmanni sínum nokkrum árum áður en vindmyllan var reist. Hún leggur áherslu á að hún sé ekki andvíg vindorku sem slíkri. Hún segir í viðtali við Süddeutschen Zeitung:
„Ég er ekki andstæðingur vindorku. En hávaðinn gerði mann galinn.“
Að sögn Hahn heyrðist lágtíðni suðið jafnvel þegar gluggar voru lokaðir. Hún lýsir upplifuninni eins og að flugvél sé stöðugt á sveimi yfir húsinu. Bæjarstjórinn segir einnig að hann hafi sjálfur farið út um nætur til að mynda sér skoðun þegar önnur hljóð höfðu þagnað.
„Þetta hljómaði eins og þegar maður stígur út úr flugvél og hreyfillinn er enn í gangi“ segir hann.
Sama vandamál á fleiri stöðum
Rekstraraðilinn reyndi í nokkur ár að leysa vandann. Meðal annars var vindmyllan stöðvuð á næturnar um tíma, skipt var um gírkassa og ýmsar aðrar tæknilegar lausnir voru reyndar.
Þrátt fyrir þessar aðgerðir héldu kvartanirnar áfram. Íbúarnir gagnrýndu jafnframt yfirvöld fyrir að hafa leyft áframhaldandi rekstur þrátt fyrir að vandamálið hefði ekki verið leyst. Framleiðandinn Vestas hefur lýst aðstæðunum sem afleiðingu af óvenjulegri samsetningu staðbundinna aðstæðna og eiginleika þessarar tilteknu vindmyllu.
Svipaðar kvartanir hafa einnig komið upp annars staðar í Þýskalandi. Í bænum Uhingen í Baden-Württemberg hafa rannsóknir staðfest truflandi lágtíðni suð frá tveimur vindmyllum. Þar hafa einnig verið gerðar ýmsar tæknilegar úrbætur án þess að þær skili tilætluðum árangri.
Yfir 29 þúsund vindmyllur
Í Þýskalandi eru núna yfir 29.000 vindmyllur á landi. Samtök vindorkuiðnaðarins halda því fram að kvartanir vegna truflandi hávaða séu fátíðar og að langflestar vindmyllur starfi án vandkvæða.
Umhverfissálfræðingurinn Gundula Hübner við háskólann í Halle-Wittenberg viðurkennir að heyranlegt lágtíðni suð frá vindmyllum komi fyrir, en segir að tiltölulega fáir verði fyrir áhrifum. Rannsóknir sýna að sumir íbúar glíma við streituviðbrögð, svefntruflanir, einbeitingarerfiðleika og pirringu.
Að sögn Hübner er jákvætt þegar rekstraraðilar taka kvartanir alvarlega og reyna að finna lausnir, jafnvel þótt það leiði í undantekningartilvikum til þess að vindmyllur séu fjarlægðar.
Breytt viðhorf til vindorkuvera
Gert ráð fyrir að niðurrif vindmyllunnar hefjist eftir samkomulag milli landeiganda, rekstraraðila og framleiðanda um miðjan júlí. Samkvæmt þeim sem að málinu koma verða engir skattpeningar notaðir við framkvæmdina. Að sögn samtaka þýska vindorkuiðnaðarins er ekki vitað um annað dæmi þar sem vindmylla hefur verið rifin vegna hávaðavandamála af þessu tagi.
Fyrir marga í Oberwiera hefur deilan skilið eftir djúp spor. Andstaða við ný vindorkuverkefni hefur aukist verulega og sveitarfélagið er nú andvígt bæði annarri vindmyllu sem áður var fyrirhuguð og frekari uppbyggingu sem er á svæðisskipulagi. Bæjarstjórinn Quellmalz segir reynsluna sýna að meira tillit verði að taka til lífsgæða fólks við skipulagningu:
„Hagsmunir fólks sem nýtur verndar verða að fá meira vægi. Það er ekki ásættanlegt að fólk verði fyrir jafn miklum áhrifum af slíkum mannvirkjum.“
Fyrir íbúana sem urðu fyrir áhrifum felur væntanlegt niðurrif fyrst og fremst í sér létti. Eftir meira en tveggja ára deilu vona þeir nú að hávaðinn heyri brátt sögunni til.
