Úrskurðarnefnd kosningamála hefur hafnað kæru Loga Kjartanssonar og þess hóps sem hann fer fyrir um ólögmæti þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Í sex síðna skjali, þar sem fimm síður eru notaðar sem lýsing á atriðum kærunnar er kærunni síðan hafnað á þeirri sjöttu með tilvísun í 1. málsgrein 26.gr. kosningalaga. Í úrskurðinum segir:
„Ákvæðið gerir ekki kröfu um að tiltekinn ráðherra leggi þingsályktunartillöguna fram. Þá er hvorki mælt fyrir um ákveðna þinglega meðferð í kosningalögum né um hlutverk þess ráðherra sem leggur fram þingsályktunartillöguna fram.”
Úrskurðarnefndin lætur sig engu varða að forseti úrskurðar valdsvið ráðherra og verkefnasvið ráðuneyta sem staðfest er með sérstökum forsetaúrskurði. Þar er ákveðið hvaða ráðherrar eru bærir til að fara með málaflokka sem ráðuneytin fara með. Forsetaúrskurðir voru efldir eftir bankahrunið 2008 til að tryggja eftirlit Alþingis með framkvæmdavaldinu og að hægt yrði að grípa í taumana ef augljósir brestir kæmu fram í meðferð framkvæmdavaldsins. Núna hefur úrskurðarnefndin bætt sjálfri sér við á listann yfir stofnanir sem bresta í öryggismálum lýðveldisins. Með sömu kærulausri afstöðu mun úrskurðanefndin nefnilega ekki bregðast við þótt fram færi valdarán á Alþingi og lög sett um að leggja niður lýðveldið og taka upp einræðislegt stjórnarfar á Íslandi. Bara ef Alþingi samþykkir málið þá er það rétt.
Með tilliti til gerð kosningalaganna er þessi afstaða að sjálfsögðu alfarið út í hött. Kosningalögin byggja á stjórnarskránni og úrskurðarnefnd kosningamála getur ekki réttlætt skammsýni sína og pólitíska afstöðu með því að búa til sjálf undanþágu frá hlutverki sínu og finna upp eigin annmarka á kosningalögunum af því að þau fjalla ekki sérstaklega um hlutverk forsetaúrskurða um verkefnaskiptingu framkvæmdavaldsins. Þetta er algjört vindhögg, hrafnaspark, krábull og krass.
Orðið djúpríki nær yfir slík vinnubrögð, þar sem kerfið ver kerfið óháð stöðu lýðræðis og lýðveldis. Varðandi Evrópusambandið, þá þarf það ekki á aðild Íslands að halda ef það getur náð fram pólitískum markmiðum sínum gegnum kerfisfólk sem rígheldur sér í stöður og kerfi kerfisins vegna. Þetta er einmitt fólkið sem gerir það að verkum að framkvæmdavaldið getur orðið aðskilið lýðræðislegum grundvelli sem ákveðinn er í stjórnarskránni. Allt í einu finna lýðræðislega kjörnir fulltrúar að þótt þeir leggi fram ákveðna stefnu, þá nær hún ekki fram að ganga vegna þess að starfsmenn kerfisins eru á annarri skoðun. Á Íslandi er þetta einkar ljóst með áhrifum ESB á ríkisútvarpið og menntakerfið. Langskólagengnum á Íslandi býðst lifibrauð í kerfinu ef þeir framfylgja stefnu ESB í staðinn fyrir lögbundinni lýðræðisstefnu lýðveldisins samkvæmt stjórnarskrá. Þar er líka komin skýringin á því að ekki er hægt að draga ónýta aðildarumsókn frá 2009 til baka aftur.
Greinilegt er að krafan um afsögn ríkisstjórnarinnar sem kastað hefur þjóðinni á ný út í varnarbaráttu fyrir sjálfstæði þjóðarinnar mun ekki duga ein og sér til að uppræta þau skemmdarverk sem unnin hafa verið á lýðveldinu með pólitískri framkomu embættismanna sem fylgja ekki stjórnarskránni. Að vókið er ekkert annað en gamall kommúnismi í nýjum klæðnaði er mál sem þjóðin verður að gera upp við. Þarf að fara inn í stofnanir og uppræta hugarfarið að ókjörnir embættismenn geti hagað sér eins og ríki í ríkinu, breytt málfari, túlkað lögin fyrir sig og almennt dregið úr mætti stjórnarskrárinnar í stjórnkerfinu.
Það var ástæða fyrir því að skerpt var á forsetaúrskurðum og að lög um stjórnarráðið voru sett.
Úrskurðarnefnd kosningamála sýnir að þörf er á sterkari öryggisgæslu lýðræðisins gagnvart blindu framkvæmdavaldi sem veður um allt stjórnarfarskerfið á skítugum skónum og fremur valdarán að tjaldabaki fyrir erlenda hagsmuni.
Þjóðólfur mun fljótlega ná tali af Loga Kjartanssyni til að ræða um þetta mál.
Hér að neðan má lesa úrskurð nefndarinnar:
