Mbl.is segir frá því að Óli Björn Kárason hefur gefið út nýja bók með nafninu Villigötur valdsins þar sem hann fjallar meðal annars um útþenslu ríkisvaldsins, frelsi einstaklingsins og stöðu borgaralegra hugmynda, en einnig hvernig breytt víglína blasi við í stjórnmál-um landsins.
Í þættinum er rætt um hugmyndafræðilega baráttu hægrimanna, breytt stjórnmál á Vesturlöndum, uppgang pópúlisma og stöðu Sjálfstæðisflokksins eftir þrásetu í ríkisstjórn, sem ekki hafi náð vopnum sínum sem skyldi í stjórnarandstöðu.
Óli Björn segir Sjálfstæðisflokk, Miðflokk og Framsóknarflokk vera hina borgaralegu flokka á Íslandi. Aðrir flokkar séu vinstriflokkar, misjafnlega langt til vinstri.
Hann vísar sérstaklega til skattastefnu ríkisstjórnarinnar og segir Viðreisn ekki geta gert tilkall til þess að teljast hægriflokkur meðan hún fari með fjármálaráðuneytið með því móti sem raunin hafi verið.
„Núverandi ríkisstjórn er að skrúfa fyrir súrefnið, skrúfa fyrir súrefni til heimila og skrúfa fyrir súrefni til fyrirtækja,” segir Óli Björn.
Hann segir jafnframt að hægrimenn hafi að hluta misst sjálfstraustið eftir fjármálakreppuna og þurfi nú að taka hugmyndabaráttuna föstum tökum á ný, ræða grundvallarhugmyndir sínar opinskátt og vera óhræddir við að hafa stundum rangt fyrir sér.
Þjóðólfur tekur undir þessi orð. Innanlands óvinir Íslands sækja í sig veðrið þegar sjálfstæðismenn eru sundraðir samanber frétt um Árna Pál og lögsókn ESA gegn Íslandi. Þessi bók er mjög þörf. Þjóðólfur mun skrifa meira um málið á komandi vikum.
