Viktor Orbán: „Einfalt reikningsdæmi – þetta eru skipulögð íbúaskipti“

Í þessari viku var haldin ráðstefna íhaldsmanna, CPAC, í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands, þar sem margir þjóðarleiðtogar sem gagnrýna innflytjendastefnu ESB komu saman. Að sögn Herberts Kickl, leiðtoga FPÖ í Austurríki, eru fjöldainnflytjendamálin í Evrópu engin tilviljun heldur hluti af stórri áætlun. Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, var skýr í sinni afstöðu og lýsti verkefninu sem „skipulögðum íbúaskiptum.“

Daga 29. til 30. maí var haldin ráðstefna íhaldsmanna, CPAC, þar sem leiðtogar og álitsgjafar frá öllum heimshornum koma saman. Þema ársins, sem gengur undir nafninu „Öld föðurlandsvina,“ endurspeglar skýra andstöðu við glóbalizmann, fjöldainnflytjendamál og yfirþjóðleg áhrif ESB.

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, opnaði ráðstefnuna og benti á að Evrópa stæði frammi fyrir vali um frjálslynda eða fullveldissinnaða framtíð. Orbán sagði að fjöldainnflytjendamál Evrópu væru „skipulögð íbúaskipti.“ Hann gagnrýndi Evrópusambandið harðlega fyrir hin svo kölluðu grænu umskipti sem þýðir að almenningur í aðildarríkjum ESB greiðir miklu hærra verð fyrir rafmagnið en til dæmis Bandaríkjamenn (sjá hluta ræðunnar á X að neðan):

„Við borgum tvisvar eða allt að fjórum sinnum meira fyrir rafmagn og gas en almenningur í Bandaríkjunum.“

Það sem er að gerast í Evrópu er engin tilviljun

Herbert Kickl, leiðtogi íhaldsflokksins FPÖ í Austurríki, sem varð stærsti flokkur landsins í kosningunum í fyrra var einnig með á ráðstefnunni. Hann varaði við því að það sem er að gerast í Evrópu væri afleiðing meðvitaðrar áætlunar og benti jafnframt á að mótspyrna gegn heimsvaldastefnu Brussel væri að aukast:

„Það sem er að gerast í Evrópu er engin tilviljun. Þetta er áætlun meðvitaðrar þjóðernislegrar og menningarlegrar umbreytingar.“

Hann hélt því fram að hver sá sem svíkur meðborgarana sé svikari. Hann sagði einnig að aðlögun sé uppspuni þar sem hún þýðir í reynd að meirihlutanum sé ætlað að aðlagast minnihlutanum (sjá hluta ræðunnar á X að neðan):

„Réttlæti þýðir að verið er að ráðskast með eigin þjóð í hringiðu stjórnmálaákvarðana. Hver sem svíkur eigin meðborgara er svikari.“

Nýtt járntjald fyrirboði meiri háttar hernaðarátaka

Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, notaði tækifærið til að hrósa Orbán fyrir visku hans og hugrekki. Fico varaði við áætlunum ESB um að afnema neitunarvaldið og beita refsiaðgerðum gegn löndum sem verja fullveldi sitt og sagði þá þróun leiða til myndunar „nýs járntjalds.“

Hann lagði áherslu á að styrkleiki ESB ætti að koma fram í vilja til gera málamiðlanir í gagnkvæmri virðingu. Hins vegar væri áætlun um að afnema neitunarvaldið og yfirbuga aðildarríki skref frá lýðræðinu:

„Að þvinga fram pólitíska einsleitni, afnema neitunarvaldið, refsa fullvalda og hugrökkum þjóðum, reisa nýtt járntjald og setja stríð ofar friði – allt þetta þýðir endalok Evrópusambandsins. Þetta markar brotthvarf frá lýðræði og er fyrirboði um meiri háttar hernaðarátök.“

Forsætisráðherra Slóvakíu, sem særðist alvarlega í morðtilræði í fyrra, sagðist einnig vilja sjá endalok Úkraínustríðsins mjög fljótlega. Fico hvetur aðlidarríki ESB til að hefja viðræður við Rússland, sjá ræðu Fico hér að neðan:

Frjálslyndur fasismi alþjóðlega stríðsflokksins

Irakli Kobakhidze, forsætisráðherra Georgíu, sem var undir þrýstingi og refsiaðgerðum frá ESB í fyrra eftir ásakanir um kosningasvik, hélt ræðu (sjá YouTube að neðan). Hann sagði meðal annars:

„Við erum hluti af hinu raunverulega Vestri sem byggir á frelsi, trú og fjölskyldu en ekki skriffinnsku Vesturlanda sem knúin er áfram af verkefnum djúpríkisins.“

Forsætisráðherra Georgíu hefur gagnrýnt harðlega það sem hann lýsir sem „frjálslyndum fasisma“ og sakar hreyfingar og stofnanir sem fjármagnaðar eru erlendis um að grafa undan gildum Georgíu, dreifa kynjafræðum LGBTQ-hreyfingarinnar og skipta sér af innri málum landsins.

Að sögn Kobakhidze er um samhæfða alþjóðlega herferð að ræða sem hefur áhrif í mörgum mismunandi löndum undir forystu djúpríkisins eða það sem hann kallar „alþjóðlega stríðsflokkinn.“ Markmiðið er að afmá þjóðarvitund og ná stjórn á opinberri umræðu. Hann telur að þessi öfl „ætli að taka yfir heiminn og telji sig eiga rétt á að stjórna öllu.“

Hann sagði einnig að þar sem hann sjálfur og georgíska ríkisstjórnin hafi unnið að friði í Úkraínu hafi alþjóðlegir fjölmiðlar og stofnanir lagt sig fram um að refsa og rægja Georgíu.

Hann fagnaði aðgerðum Bandaríkjastjórnar til að afnema djúpríkið og lýsti jafnframt yfir stuðningi sínum við Donald Trump Bandaríkjaforseta og vonaðist til að samskipti Georgíu, Bandaríkjanna og ESB myndu eflast.

Fara efst á síðu