Viðtal Frosta Logasonar við Ólaf Ragnar Grímsson

Óvíst að það verði nokkur seinni atkvæðagreiðsla verði niðurstaðan já þann 29. ágúst

Þátturinn Brotkast sem Frosti Logason stýrir, hafði nýlega fyrrverandi forseta Íslands sem gest og var til umræðu sú vegferð ríkisstjórnarinnar að endurvekja aðildarumsókn ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sem landsmönnum er núna fyrirlagt að greiða atkvæði um þann 29. ágúst næst komandi. Þátturinn hefur verið birtur í heild sinni á YouTube og hvetur Þjóðólfur alla til að hlýða á það og veita orðum Ólafs Ragnars Grímssonar athygli, því hann hefur stjórnarfarslega séð eina mestu reynslu núlifandi Íslendinga af sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.

Með myndskeiðinu á YouTube segir:

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, sest hér niður með Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og þær afleiðingar sem samþykki hennar gæti haft fyrir framtíðarstöðu Íslands.

Ólafur Ragnar hafnar því alfarið að Íslendingar geti einfaldlega sagt „já til að sjá“ og farið í hlutlausar könnunarviðræður við ESB. Slíkt ferli sé ekki til innan kerfis sambandsins. Samþykki þjóðarinnar yrði túlkað í Brussel og umheiminum sem endurvakin umsókn Íslands um aðild.

Hann segir erlenda sérfræðinga sem þekkja vel til ESB hafa hlegið þegar hann útskýrði fyrir þeim málflutninginn um að Íslendingar ætluðu aðeins að „kíkja í pakkann“. Að hans mati gæti íslenskur ráðherra því lent í þeirri stöðu að þurfa annaðhvort að hefja raunverulegt aðildarferli eða mæta í Brussel með málflutning sem yrði ekki tekinn alvarlega.

Ólafur Ragnar segir að viðræðurnar gætu dregist árum saman og tekið gríðarlegt súrefni úr íslenska stjórnkerfinu án þess að nokkur lokasamningur líti dagsins ljós. Á meðan gæti Ísland lent í óvissustöðu gagnvart viðskiptaþjóðum sínum og mögulegum samstarfsaðilum um allan heim.

Í lok viðtalsins lítur Ólafur Ragnar yfir tuttugu ára forsetatíð sína, þjóðaratkvæðagreiðslurnar um Icesave og þann persónulega kostnað sem fylgdi ákvörðun hans um að standa gegn ríkisstjórn fyrrverandi samherja sinna. Hann segir suma gamla vini sína hafa hætt að heilsa sér og lýsir því hvers vegna hann ákvað, þrátt fyrir fyrirsjáanlega gagnrýni, að stíga aftur inn á hinn pólitíska umræðuvöll:

„Mér er ekki sama um lýðveldið. Mér er ekki sama um árangurinn af baráttu fyrri kynslóða.“