Arnar Þór Jónsson lögmaður hefur lagt fram kæru á hendur Þorgerði Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, fyrir landráð.
Kæran var send ríkislögreglustjóra föstudaginn 13. júní fyrir hönd Þjóðfrelsis en um 30 einstaklingar úr þeim hóp standa að kærunni.
Grundvöllur kærunnar er, að Bókun 35 sem utanríkisráðherra hefur lagt fram sem frumvarp á Alþingi og ríkisstjórnin reynir að hraða gegnum þingið, brýtur gegn stjórnarskrá lýðveldisins þar sem Alþingi er óheimilt að afsala hluta eða öllu löggjafar- og dómsvaldi til ESB í Brussel að óbreyttri stjórnarskrá.
Spurningin er hvort Alþingi sé stætt að keyra málið í gegn með jafn alvarlegri ásökun á hendur utanríkisráðherra án þess að dómstólar hafi tekið það mál fyrir.