Svik stjórn- málanna

Íris Erlingsdóttir fjölmiðlafræðingur og Gústaf Skúlason hjá Þjóðólfi bera saman niðurstöður rannsóknarskýrslu um fjármálahrunið ár 2008 miðað við þann póitíska rétttrúnað sem tröllríður íslensku samfélagi um þessar mundir og þá múgsefjun sem ríkir.

Ekki þarf að leita lengi til að sjá að Alþingi hefur ekki fylgt eftir niðurstöðum skýrslunnar, hvorki um fjölmiðla, málfrelsi eða eigin starfshætti.

Þá voru fjármálin í húfi og allt fjármálakerfið lagðist á hliðina. Ástandið núna er hundrað sinnum verra þar sem sjálfur raunveruleikinn er í húfi og afkoma þjóðarinnar.

Í stað fjármálavíkinga þess tíma eru vókaðir veruleikafirrtir femínistar við völd í dag sem taka þátt í stríðskapphlaupi stórveldanna. Íslenska þjóðin er dregin að altari andstæðinga Bandaríkjanna og þjóðin ekki höfð með í ráðum og fær lítið sem ekkert að vita um það sem er að gerast.

Nákvæmlega eins og mínútu fyrir fjármálahrun ár 2008 eru þeir sem reyna að koma varnaðarorðum á framfæri hundeltir, rægðir og ofsóttir sem hatursorðræðumenn.

Alþingi hefur ekki framfylgt niðurstöðum rannsóknarskýrslu fjármálahrunsins frá 2008. Stjórnmálin svíkja, almenningur situr uppi með tapið.

378 views

Fara efst á síðu