Páll Vilhjálmsson bloggari og Hallur Hallsson ritstjóri Þjóðólfs segja frá reynslu sinni af þöggunartilraunum í tveimur stórum sakamálum sem fjölmiðlar þegja um: Byrlunarmálinu og Fósturvísamálinu. Reynt hefur verið að þagga niður í Páli Vilhjálmssyni með málaferlum og tveir lögreglumenn voru sendir frá höfuðborginni til Akureyrar til að þagga niður í Halli Hallssyni.
Brestur er í stoðum málfrelsis þegar blaðamenn vinna með þöggunaröflum sem stunda ritskoðun á öðrum blaðamönnum. Páll upplýsti að Blaðamannafélagið hafi verið tekið í gíslingu í því skyni. Hallur lýsti bandalagi þöggunnar hjá hverri ríkisstofnuninni á fætur annarri sem komið hefur skýrt fram í Fósturvísamálinu. Með þöggun er reynt að dylja einelti og ofsóknir á saklausum meðborgurum sem leita réttar síns.