Morðingi – nauðgari – nasisti

Samtökin 78 ráðast ekki á háann garðinn.

Þau ráðast á konur í félagsstarfi með innflytjendum sem fengið hafa aðstöðu á Amtsbókasafninu á Akureyri í farsælu samstarfi bókasafnsins og Andrýmis sem félag kvennanna heitir.

Framkvæmdastjóri S78, Kári Garðason sendi bréf til Amtsbókasafnsins með kröfu um að forsvarsfólk bókasafnsins „taki föstum tökum“ á stöðunni vegna skoðana sem S78 eru ekki þóknanlegar. Síðan sendir starfsmaður bókasafnsins bréf um hatursorðræðu til Andrýmis og á fundi í kjölfarið lýsir forstöðumaður bókasafnsins því yfir að stuðningur við skrif einna kvennanna megi líkja við stuðning við morðingja, nauðgara og nasista.

Eru S78 ríki í ríkinu?

Ekki eru stjórnarmeðlimir S78 kjörnir eins og alþingismenn en samt hegða S78 sér eins og þau hafi vald til að skipa sveitarstjórnum og stofnunum fyrir eins og eitthvert ráðuneyti.

Greinilega eru margir hræddir við að styggja S78 þegar afleiðingarnar geta orðið vinnumissir eða eyðilagt fyrir innflytjendum og norðlenskum konum sem hjálpa þeim að aðlaga sig samfélaginu.

Hatursorðræða er uppáhaldstól allra einræðisherra.

241 views

Fara efst á síðu