Karl Gunnarsson flugstjóri hefur búið í Kanada í áratugi og þekkir land og þjóð mjög vel.
Hann greinir hér frá ástandinu í Kanada og hvernig Kínverjar hafa keypt upp jarðir og aðgang að auðlindum Kanada til dæmis dýrmætum málmum.
Hann lýsir stöðunni þannig að Kanada sé í vasa Kína. Kínverjar hafa að sögn Karls einnig byggt eiturlyfjaverksmiðjur í Kanada og smygla Fentanyl til Bandaríkjanna með þeim ásetningi að drepa eins marga Bandaríkjamenn, unga sem aldna, og hægt er.
Kínverski kommúnistaflokkurinn selur eigið eftirlitskerfi með kúguðum landsmönnum til hálfblindra spilltra stjórnmálamanna á Vesturlöndum sem innleiða myndavélar með sama andlitsgreiningarkerfi og kommúnistar nota í Kína.
Áhrif kínverska kommúnistaflokksins breiðir úr sér um alla jörð.