Leiðtogar Evrópu hafa glatað allri skynsemi þegar kemur að stríðinu við Rússland. Engin skynsamleg hugsun ræður lengur ferðinni og það eina sem þeir gera er að stigmagna átökin. Nú eru þeir knúnir áfram af „hreinu hatri“ í garð Rússlands, að mati norska stjórnmálafræðingsins Glenn Diesen.
Þetta segir Glenn Diesen í viðtali í þættinum Judging Freedom, (sjá að neðan) þar sem hann varar við því sem hann kallar óskynsamlegt Rússahatur í Evrópu og telur að það geti hæglega leitt til stríðs.
Að hans sögn er það venjulega eðlileg stjórnsýsla að meta stöðuna af yfirvegun og vega og meta ólíka kosti. Nú sé hins vegar aðeins ein stefna í gangi – stöðug stigmögnun.
Þýskaland ætlar að verða öflugusta herveldi Evrópu á ný
Diesen bendir á metnað Þýskalands til að verða öflugasta herveldi Evrópu, umræðu um að taka herskyldu upp á ný og nýlega ákvörðun Finnlands um að aflétta takmörkunum á flutningi og geymslu kjarnorkuvopna á finnsku yfirráðasvæði. Að mati Diesens benda þessar aðgerðir til þess að Evrópa sé að búa sig undir bein hernaðarátök við Rússland.
Diesen sagði að ríkisstjórnir Evrópu vildu helst sigra Rússland fyrir tilstilli Úkraínu. Ef sú stefna brygðist telji hann að þær kunni að komast að þeirri niðurstöðu að bein hernaðarátök við Rússland séu eini kosturinn sem eftir standi. Hann lagði áherslu á að þetta væri ekki ýkjur og benti á umfangsmiklar árásir á Moskvu að undanförnu, sem hann telur að ekki hefðu verið framkvæmanlegar nema með verulegri aðstoð NATO.
Napolitano vísaði því næst til ummæla Douglas Macgregor, fyrrverandi ofursta í bandaríska hernum, sem hefur lýst þýska kanslaranum Friedrich Merz sem „hættulegasta leiðtoga Evrópu síðan Hitler“, og spurði Diesen hvort slíkur samanburður ætti við rök að styðjast.
Friedrich Merz: „Hættulegasti leiðtogi Evrópu síðan Hitler“
Diesen svaraði að hann teldi þetta ekki vera ýkjur. Að hans mati hefur Þýskaland tekið sér forystuhlutverk í því að búa Evrópu undir átök við Rússland. Þar sem slík átök gætu á skömmum tíma þróast yfir í kjarnorkustríð taldi hann að Merz gæti í raun orðið einn hættulegasti þýski leiðtoginn í sögunni.
Hann gagnrýndi jafnframt þá hugsun sem hann segir ríkjandi í Evrópu, að alltaf sé hægt að stýra stigmögnun átaka. Að mati Diesens virðast evrópskir ráðamenn sannfærðir um að Rússar muni bregðast við af yfirvegun og fyrirsjáanleika, þannig að báðir aðilar geti stigið upp stigmögnunarstigann í vel afmörkuðum skrefum. Hann telur þessa forsendu vera hættulega blekkingu.
Að sögn Diesens yrðu öll slík áform að engu þegar Rússland réðist beint gegn Evrópu og Evrópa svaraði í sömu mynt. Þá myndi stigmögnunin fara hratt úr böndunum og verða engum viðráðanleg. Hann kvaðst hafa áhyggjur af því að þessi mál fengju litla sem enga alvarlega umræðu innan NATO, þar sem þeir sem hvetja til varfærni séu jafnan sakaðir um að endurtaka málflutning Rússa.
Evrópa eins og svefngengill á leið inn í stórstyrjöld
Að mati Diesens er Evrópa nú eins og svefngengill á leið inn í stórstyrjöld sem gæti haft skelfilegar afleiðingar.
Glenn Diesedn segir í þættinum:
„Evrópa er orðin eins og holræsi fullt af Rússahatri. Skynsemin er horfin. Ef einhver stingur upp á því að við ættum ef til vill að fara varlega til að koma í veg fyrir kjarnorkustríð, þá er svarið einfaldlega: „Það voru Rússarnir sem byrjuðu.“ Öll skynsemi er horfin. Eftir stendur aðeins hreint hatur.“
Hann segir að slík hugsun leiði óhjákvæmilega til aukinnar hættu á átökum.
„Þetta er uppskrift að stríði – og þangað stefnum við mjög hratt.“