Lola Daviet var aðeins tólf ára, þegar líf hennar var tekið á hryllilegan hátt þann 14. október 2022 í París. Hún átti lífið fram undan — tíma til að stækka, verða fullorðin, dreyma, eignast minningar og finna sér farveg í heiminum. Fyrir tæpu ári síðan var morðingi hennar, alserísk innflyjandakona, Dahbia Benkired, dæmd sem fyrsta kona til ströngustu refsingu franskra laga, fyrir morð, nauðgun og pyntingar.
Lola Daviet er orðið tákn fyrir fórnalömb ofbeldisfullra innflytjenda, sem halda að þeir komist upp með hvað sem er á Vesturlöndum. Engin orð geta bætt þann missi sem fjölskylda hennar og ástvinir hafa orðið fyrir.
En við getum varðveitt minningu hennar af hlýju og virðingu.
Nafn hennar á að minna okkur á barnið sem hún var, lífið sem hún átti skilið og rétt allra barna til að alast upp við ást og öryggi.
Hugur okkar er hjá þeim sem elskuðu hana og bera söknuðinn alla daga.
Látum ekki morðið á Lolu hverfa í gleymskunnar dá.
Stöndum saman til að koma í veg fyrir slík illdæði í framtíðinni.
Hvíl í friði, elsku Lola. Við munum aldrei gleyma þér.
