Vestur-Evrópubúar „staðráðnir í að fremja sjálfsmorð“

Vestur-Evrópubúar hafa „ákveðið að kála sér.“ Tucker Carlson segir þetta í nýjum samtalsþætti (sjá YouTube að neðan). Vestur-Evrópubúar láta eins og þeir séu að fara að stökkva fram af brúnni. Ef þeir vilja ekki taka við hjálp, þá er ómögulegt að hjálpa þeim.

Tucker Carlson ræðir í nýjum samtalsþætti við Curt Mills ritstjóra hjá samtökunum Bandaríska íhaldsstefnan eða „American Conseravtive“ um hvers vegna Vestur-Evrópubúar eru svona hundleiðinlegir í vissum málum eins og varðandi Úkraínustríðið.

Tucker hefur mjög ákveðið svar sem hann útskýrir:

„Þeir eru staðráðnir í að fremja sjálfsmorð. Vestur-Evrópubúar, ekki Austur-Evrópubúar eða Mið-Evrópubúar, heldur hafa Vestur-Evrópubúar ákveðið að kála sér. Þetta er næstum því eins og þegar einhver stendur á brú eða í glugga á skýjakljúfi og þú reynir að sannfæra hann um að gera það ekki. Það er erfitt. Og hver veit hvers vegna það er að gerast.“

„Þeir sprengja sundur Nord Stream, eyðileggja þýska hagkerfið og þú mátt ekki segja neitt um málið í Þýskalandi. Ég veit ekki hvort við getum þá hjálpað þeim. Skilurðu hvað ég á við? Ef þú hefur svo einarðan ásetning um að skaða sjálfan þig, ert svo kappsfullur um að eyðileggja þína eigin siðmenningu og gera það ómögulegt fyrir börnin þín að búa þar, þá ertu að kála þér. Það er ekki hægt að hjálpa einhverjum sem vill ekki hjálpa sér sjálfur. Svo hoppið þá.“

Fara efst á síðu