Veruleikafirrt ríkisstjórn

Veit greinilega ekki sitt rjúkandi ráð

Kristrún Frostadóttir sem gjallar á stórskjám alþjóðlegra sósíalista að það þurfi að hrista upp í kapítalískum kerfum hefur svo sannarlega tekist að gera það. En kannski ekki með þeim formerkjum sem hún boðaði. Hvort það hefur áhrif á einkunnagjöf hennar hjá Ungum alþjóðaleiðtogum glóbaliztanna í Davos á eftir að koma í ljós. Það er þversögn í því að útmála nokkra af duglegustu frumkvöðlum Íslands sem óvini landsins en sjálf leita frama á vegferð stærstu ólígarka heims sem eru að sölsa undir sig stjórnmálavöld í öllum hinum vestræna heimi. Valdamesta kona Evrópusambandsins, frú von der Leyen, er eitt skýrasta táknið. Enginn kjósandi í Evrópu hefur kosið hana og enginn kjósandi getur komið henni frá völdum.

ESB-kosningarnar á Íslandi áttu að vera snilldarbragð hinnar upprennandi ungu alþjóðastjörnu sósíalismans sem leiddi leiftursókn Evrópusambandsins gegn okkar fámennu þjóð. Valdastaðan á Alþingi notuð til að keyra í gegn ólögmætri ályktun sem ekki fylgdi neinum þingskaparhefðum. Tilkynnt um þjóðaratkvæði með örskömmum fyrirvara og atkvæðagreiðslan sett í lok sumarfría til að reyna að tryggja að umræður yrðu takmarkaðar, svo blekkingin um aðildarumsóknina tækist. Og það munaði mjóu. Hurð skall nærri hælum. Eða með orðum Dr. Carl Baudenbacher: Útkoman varð sigur sem jaðrar við kraftaverk.

Í eigin friðaða hugarheimi fjarri almenningi er hátt til himins metorða og stigi sjálfsglansmynda endalaus. Valkyrjurnar kyrja dýrð hverrar annarrar fyrir hverja aðra svo öruggt sé að hægt sé að halda illum öndum utan varnargirðingarinnar. Það var ótrúlegt og blátt áfram spaugilegt að sjá falsið sem birtist í sperringi þeirra á blaðamannafundinum eftir að þjóðin hafði hafnað bröltinu um inngöngu í ESB. Allar töluðu þær eins og um stórkostlegan sigur væri að ræða. Að ríkisstjórnin væri sigurvegari af því að hún hefði boðið þjóðinni upp á lýðræðisveislu sem allir aðrir stjórnmálaflokkar hefðu svikið. Það er kannski ástæða fyrir því að enginn viljdi endurvekja ESB-lík Jóhönnu og Steingríms. Eftir hina hatrömmu baráttu við ESB í Icesave, þá hefur þjóðin engan áhuga á að gerast húskarl von der Leyen.

Þetta var vitað. Einnig að ekki er meirihluti á núverandi þingi fyrir inngöngu í ESB. Og það var líka vitað, þegar fólk kaus ríkisstjórnarflokkana að núverandi forsætisráðherra lofaði því, að ESB-málið yrði ekki sett á dagskrá á þessu kjörtímabili. Engu að síður tóku valkyrjurnar þá áhættu að reyna að múlbinda þjóðina við valdaapparat Evrópusambandsins sem telur um 100 þúsund manna her búrókrata og hagsmunavarða.

Framferði valkyrjanna hefur ekki aðeins tekið tíma frá þjóðinni og fé heldur hefur einnig rifið upp sárið sem útrásarvíkingar orsökuðu þjóðinni og leiddi til hruns fjármálakerfisins. Þetta sár mun stækka með áframhaldandi óbilgirni og veruleikafirringu valkyrjanna svo lengi sem þær sitja við völd. Jafn blindar og þær eru á skilaboð kjósenda, þá er augljóst að þær muni geta valdið þjóð sinni sem þær þykjast vinna fyrir ómældum skaða það sem eftir er af kjörtímabilinu.

Alls staðar úr heiminum koma viðbrögð sem ættu að koma valkyrjunum á óvart. Núna er í alvöru rætt um að Íslendingar hafi stöðvað áróðursmaskínu sambandsins sem notar hvert tækifæri sem hægt er til að klína skít á ríkisstjórn Bandaríkjanna og sitjandi forseta, Donald Trump. Það er vel ef svo er en það er þveröfugt við markmið valkyrjanna að koma Íslandi undir valdasvæði Evrópusambandsins og auka völd sósíalismans á meginlandinu.

ESB fordæmir alla sem reyna að koma á friði í Úkraínu. Áróðursmoksturinn er hrikalegur og allir taldir Pútín-sleikjur og stórhættulegir sem vilja ræða frið við Pútín. ESB er orðið að stríðsáróðursmaskínu sem undirbýr árás sem kalla mætti Barbarossa 2.0 gegn Rússlandi. Greinilegt er að Íslendingar sem lýstu því yfir nær samhljóma að þeir vildu frekar fá Kamillu Harris sem forseta í staðinn fyrir Trump, eru farnir að átta sig á út á hvað ESB gengur. Orð dr. Carl Baudenbacher sem segir að margir séu að opna augun vegna ritskoðunar ESB eins Chat Control hafa sannast. Það ánægjulega er að unga fólkið er farið að sjá þetta og þau atkvæði flykktust inn á lokametrunum og tryggðu sigurinn.

Ríkisstjórnin hefur ekki aðeins skaðað Ísland með algjörlega ótímabærri og vonlausri ESB-vegferð. Hún hefur líka stórskaðað álit ESB í heiminum. Og er þá mikið sagt, þar sem sambandið er alveg fullfært um það sjálft. Miðað við þau gríðarlegu viðbrögð sem orðið hafa út um allan heim má hins vegar segja að niðurstaðan sé kornið sem fyllir mælinn.

Brellur af því tagi sem valkyrjurnar hafa gerst sekar um, að fara með ósannindi um eðli kosninganna, er ljótur leikur samkvæmt klækjabók ESB. Að valkyrjurnar ætla að halda áfram eins og ekkert hafi skorið ber ekki aðeins vott um takmarkalaust dómgreindarleysi heldur slíka veruleikafirringu að sjálfir Bakkabræður eru verðugir doktorsnafnbótar fyrir vitleysur sínar.

Valkyrjurnar eiga heima í Brussel og gerðu þjóðinni mestan greiða með því að taka sitt pikk og pakk og flytja þangað.

Íslendingar hafa annað við tímann að gera. Eins og til dæmis að sjá um framleiðslu, hagvöxt og byggja út eigin velferð. Þeir sem ráða örlögum sínum sjálfir eru hæfastir til slíkra verka.