Veröld á hverfanda hveli hverfur í vindinum

Þau stórmerku tíðindi hafa gerst í bandarískum stjórnmálum að þjóðkunnir demókratar hafa gengið til liðs við repúblikana og kunnir repúblikanar hafa gengið til liðs við demókrata. Kunnastur auðvitað er Robert F. Kennedy jr. sem gekk til liðs við Donald Trump þegar þeir féllust í faðma í Arizona. Dick Cheney varaforseti George Bush forseta [2001-2008] hefur lýst stuðningi við Kamölu Harris sem fagnar liðveislunni. Hvoru tveggja hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum.

Höfuð Kennedyfjölskyldunnar rauf 140 ára fjölskylduhefð. Fyrstur Kennedya kosinn á þing var Patrick Joseph Kennedy [1858-1929] í Massachusetts. P.J. Kennedy sat á þingi 1884-1895. Sonur hans Joseph P. Kennedy [1888-1968] sendiherra í Lundúnum faðir John F. Kennedy [1917-1963] kjörinn á þing 1947, kjörinn forseti 1960, skotinn til bana í Dallas Texas af Djúpríkinu. Bróðir hans Robert F. Kennedy [1925-1968] skotinn til bana í LA Kaliforniu. Báðir myrtir á hryllilegan hátt aðsjáandi bandarísku þjóðinni beinum útsendingum. Bræðurnir hugðust losa um heljartök hermaskínunnar; Military Complex. Í báðum tilvikum var sök varpað á blóraböggla; patsy. Lyndon Johnson [1908-1973] forseti hóf Víetnam-stríðið reist á lygi eftir morðið í Dallas. Robert boðaði brottflutning frá Víetnam.

Dick Cheney leiðtogi stríðshauka; neo-cons

Dick Cheney [1941-] varaforseti George Bush leiðtogi neo-cons; stríðshaukur. Þeir hófu Endalaus stríð i Afganistan og Írak reist á lygi. Cheney hataður af vinstri mönnum liðsmaður Military Complex sem Dwight Eisenhower [1890-1969] forseti varaði við 1961. Það blasir við bandarísku þjóðinni að demókratar eru flokkur Endalausra styrjalda; Military Complex. Barack Obama hélt stríðunum áfram og hóf vegferðina í Úkraínu. Demókratar eru flokkur lyfjarisa; Big-Pharma. Demókratar eru flokkur kemískra fæðurisa; Big-Food og þeir eru flokkur Big-Money á Wall Street. Blackrock á orðið flest í Úkraínu. Nú er enn ein plágan sögð á leiðinni apabóla; Monkey-Pox. Sprautur eru mundaðar. Fyrir átta árum vissu fáir um þessa vestrænu svikamyllu. Þessa vegslóð nátttrölla og drýsla plægir RÚV á Íslandi.

Make America Healthy Again

Donald Trump og Robert Kennedy heita að binda endi á Endalausar styrjaldir. Trump tók repúblikana úr höndum Military Complex hataður fyrir vikið af Elítunni. Trump og Kennedy hafa boðað herferð gegn lyfjarisum Big-Pharma sem hafa leitt bandaríska þjóð á braut offitu, langveiki og krabbameina. Þeir hafa boðað herferð gegn bólusetningum barna hin veikustu og feitustu í heimi. Hvert barn frá fæðingu til sex ára eitursprautað 16 sinnum leitt til einhverfu, offitu og langveiki.

Á Íslandi eru börn á fyrstu árum ævi sinnar sprautuð átta sinnum. Þetta auðvitað er sturlun. Trump og Kennedy hafa boðað herferð gegn óhollustu Big-Food með hvers kyns kemísk eiturefni í matvælum. Samruni kemíska lyfjarisans Bayer og kemíska fæðurisans Monsanto árið 2016, bæði með svarta fortíð markaði nýja skelfilega tíð fyrir mannkyn; vaksín, saccarin og skordýraeitur; pestasides í matvælum. Kennedy mun stýra Make America Healthy Again í ríkisstjórn Trump. Þeir munu binda endi á martröð transvæðinga; ungmenni leidd í klær lækna með hnífa, pillur og sprautur í hönd.

Veröld á hverfanda hveli hverfur í vindinum líkt og þegar Abraham Lincon frelsaði þrælana. Lincoln galt með lífi sínu þegar þrælahald var afnumið en Ameríka var hlekkjuð af hinum ríku og voldugu. Trump var sýnt banatilræði í Butler Pennsylvaníu vélað innan veggja hinnar amerísku stjórnsýslu með falsmiðla á vettvangi til þess að lama þjóðina. Trump vék sér undan skotinu! Bandarísk alþýða er að hrista af sér kvalara sína. Vindar hafa snúist. … Guð vinnur.

Fara efst á síðu