Verhofstadt til rannsóknar vegna umsjónar með starfsnemum á Evrópuþinginu

Verhofstadts var heiðursgestur á ársþingi Viðreisnar og sagði þá að ESB ætti að verða sambandsríki við dynjandi lófatak landsfulltrúa.

Belgísk yfirvöld rannsaka umsjón með starfsnemum á Evrópuþinginu á þeim árum sem Guy Verhofstadt, fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu, var formaður þingflokks frjálslyndra, ALDE. Rannsóknin nær til áranna 2009–2019.

Belgíska tímaritið Knack greindi fyrst frá málinu. Politico hefur eftir ónafngreindum embættismanni hjá Evrópusambandinu að rannsóknin hafi verið hafin að frumkvæði svikavarnarskrifstofu sambandsins, OLAF, og embættis evrópska saksóknarans, EPPO. Belgísk yfirvöld annist rannsóknina fyrir hönd stofnananna.

Lögmenn Verhofstadts, Christine Mussche og Quinten De Keersmaecker, segja OLAF hafa óskað upplýsinga um umsjón með nokkrum starfsnemum. Að þeirra sögn hafi Verhofstadt ekki sjálfur komið að þeirri umsjón í starfi sínu sem þingflokksformaður. Þeir segja jafnframt að hann hafi ekki verið yfirheyrður og að engar tilteknar ásakanir hafi verið bornar á hann á þessu stigi. Hann hafi veitt umbeðnar skýringar og vinni að fullu með rannsakendum.

EPPO vildi ekki tjá sig um málið. Talsmaður embættisins sagði það almennt hvorki staðfesta einstakar rannsóknir né ræða þær meðan þær stæðu yfir, til að stofna ekki rannsóknarhagsmunum í hættu. Verhofstadt kaus að tjá sig ekki frekar við Politico.

Verhofstadt var forsætisráðherra Belgíu frá 1999 til 2008 og sat á Evrópuþinginu frá 2009 til 2024. Hann varð meðal annars þekktur fyrir stuðning við aukinn samruna Evrópuríkja og hlutverk sitt fyrir hönd þingsins í tengslum við útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.