Forstjóri sænska Vattenfall, Anna Borg, segir að vindorka á hafi sé ekki arðbær.
Vattenfall í Svíþjóð sem samsvarar Landsvirkjun á Íslandi telur að vindorka á hafi úti sé ekki arðbær við núverandi aðstæður. Þetta kemur fram skömmu eftir að sænska ríkisstjórnin veitti leyfi fyrir þremur nýjum stórum vindorkuverkefnum.
Tvö þeirra verkefna sem fengu grænt ljós eru vindorkugarðar á hafi úti en eitt er á landi. Vattenfall hyggst, í samstarfi við norræna fyrirtækið Zephyr, reisa vindorkugarð á hafi úti í norðurhluta Skagerraks.
Að sögn forstjóra Vattenfall, Önnu Borg, duga núverandi raforkuverð og flutningskerfi ekki til að gera fjárfestinguna arðbæra. Hún segir í samtali við Ekot:
„Tvær meginástæðurnar eru þær að það er ekkert meginflutningskerfi raforku á hafi úti og að raforkuverð er nú ekki nægilega hátt til að réttlæta slíkar fjárfestingar. Það stafar aftur af því að eftirspurn eftir raforku eykst enn ekki í nægilegum mæli. Í Svíþjóð höfum við næga raforku og því er ekki skortur sem þarf að bæta úr á næstunni. Þess vegna eru þessar fjárfestingar ekki arðbærar.“
Til að hægt verði að ráðast í verkefnið þarf bæði aukna eftirspurn eftir jarðefnaeldsneytislausri raforku og meginflutningskerfi raforku á hafi úti:
„Við þyrftum að sjá aukna eftirspurn á Norðurlöndum sem skapaði meiri þörf fyrir nýja jarðefnaeldsneytislausa raforku. Einnig þyrfti að koma upp meginflutningskerfi á hafi úti.“
Rekstrahagnaður dróst saman um 20 prósent
Vattenfall kynnti jafnframt uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung þessa árs. Tekjur fyrirtækisins drógust saman um rúmlega níu milljarða sænskra króna miðað við sama tímabil í fyrra og rekstrarhagnaður minnkaði um tæp 20 prósent.
„Það skýrist fyrst og fremst af því að við framleiddum minni kjarnorku en á sama tíma í fyrra.“
Afkoman varð einnig fyrir áhrifum af minni framleiðslu kjarnorkuvera vegna fyrirhugaðs viðhalds í Forsmark 2, lengri rekstrarstöðvun í Ringhals 3 og þess að Ringhals 4 hefur aðeins verið starfrækt á hálfri afkastagetu frá því í maí.
