Varoufakis og Münchau: Íslenska nei-ið sýnir minnkandi aðdráttarafl ESB

Gríski hagfræðingurinn Yanis Varoufakis og þýski hagfræðingurinn Wolfgang Münchau ræddu nýlega úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi og töldu þau hafa mun víðtækari þýðingu en aðeins fyrir Ísland. Að þeirra mati sýnir niðurstaðan að Evrópusambandið hafi misst verulega af því aðdráttarafli sem það hafði fyrir aldarfjórðungi.

Münchau sagði niðurstöðuna að öllum líkindum loka umræðunni um íslenska ESB-aðild „fyrir heila kynslóð“. Hann benti á að 53% hefðu sagt nei og 47% já og sagði niðurstöðuna minna mjög á Brexit-kosninguna. Hann vakti sérstaka athygli á því að afstaða ungs fólks hefði breyst verulega í kosningabaráttunni. Í upphafi hefði könnun sýnt 70% stuðning ungs fólks við aðild, en í síðustu könnun fyrir kosningar hefði hlutfallið snúist við og 60% verið á móti.

Münchau gagnrýndi jafnframt þá röksemd að upptaka evru myndi leysa verðbólguvanda Íslands. Reynsla Eystrasaltsríkjanna sýndi, að hans mati, að upptaka evru tryggði alls ekki lægri verðbólgu.

„Myndi ég ganga í ESB í dag? Nei,“ sagði Münchau.

Hann taldi sambandið í núverandi mynd ofregluvætt og óhagstætt nýsköpun og sagði að Ísland hefði ekki augljósan efnahagslegan ávinning af aðild.

Væri algjör geggjun að samþykkja áframhaldandi aðildarferli

Varoufakis gekk enn lengra. Hann sagði að það hefði verið „algjör geggjun“ að samþykkja áframhaldandi aðildarferli og lýsti því sem undirgefni Íslands við Brussel. Hann rifjaði upp fjármálahrunið 2008 og bar saman Ísland og Írland. Að hans mati sýndi íslenska leiðin hversu mikilvægt hefði verið að standa utan evrusvæðisins og hafa frelsi til að leyfa föllnum bönkum að fara í þrot í stað þess að færa skuldir einkageirans yfir á almenning.

Varoufakis sagði jafnframt sjávarútveginn vera miðlægan í málinu og taldi Ísland hafa miklu að tapa á því að færa meira vald yfir fiskveiðiauðlindinni til Brussel. Hann gekk svo langt að segja að hluti skýringarinnar á stuðningi íslenskra stjórnmálamanna við ESB væri það sem hann kallaði „löglega spillingu“ – kerfi vel launaðra starfa, nefndarsæta og embætta í Brussel.

Münchau tók ekki undir þá skýringu að fullu en sagði hins vegar augljóst ósamræmi vera milli íslenskra stjórnvalda og meirihluta þjóðarinnar í ESB-málinu. Hann sagði niðurstöðu kosninganna hafa sýnt Evrópusambandinu spegil:

„Íslenska þjóðaratkvæðagreiðslan sýndi ESB að það er ekki eins töff og það hélt.“

Varoufakis tók enn harðar til orða og lýsti Brussel sem „Keynesísku atvinnusköpunarkerfi fyrir hátt launaða embættismenn“. Sameiginleg niðurstaða þeirra var þó skýr: íslenska nei-ið væri ekki aðeins íslenskt innanlandsmál heldur merki um djúpstæðari breytingu á því hvernig Evrópusambandið er nú orðið metið utan eigin kjarnasvæða.