Varnarbarátta upp á líf og dauða

Arnar Þór Jónsson lögmaður er óþreytandi baráttumaður fyrir íslensku þjóðina. Þjóðólfur náði tali af honum daginn eftir að hann sendi ríkislögreglustjóra ákæru hópsins Þjóðfrelsis sem kærir utanríkisráðherra Íslands Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir fyrir landráð. Bakgrunnurinn er frumvarp ráðherrans um Bókun 35 sem ríkisstjórnin reynir að keyra með hraði í gegnum þingið en hefur mætt harðri andspyrnu Miðflokksins. Arnar Þór var önnum kafinn við að mála húsið en gaf sér engu að síður tíma til að koma í viðtal til að útskýra kæruna.

Arnar Þór segir í viðtalinu að kannski hefði verið réttast að kæra einnig Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð fyrrverandi utanríkisráðherra en hún lagði frumvarpið fram fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins á síðasta þingi en þá sprakk stjórnin og málið dagaði uppi þar til nú.

Fyrrverandi utanríkisráðherra fer úr límingunum

Viðbrögð Þórdísar Reykfjörð gagnvart kæru á núverandi utanríkisráðherra hafa vægast sagt hvorki verið málstað hennar til framdráttar né henni sjálfri persónulega. Hún skrifar á Facebook:

„Að saka utanríkisráðherra um að svíkja þjóð sína er birtingarmynd pólitískra öfga. Fyrir utan hversu ómerkileg þessi árás er gagnvart embættinu, þá er hún móðgun við allar þær þjóðir sem upplifað hafa afdrifarík svik eigin borgara í þágu óvina.“

Greinilegt er að landráðskæra á ráðherra er langt fyrir utan vitsmunalegan ramma fv. ráðherrans. Hvernig þessi kæra getur verið móðgun við til dæmis Þýskaland eða Noreg er ekki útskýrt en engu er líkar en að Þórdís líti á sig sjálfa sem sjálfskipaðan málsvara fyrir fjölda þjóða. Í því samhengi er Ísland greinilega aukaatriði. Þórdís sparar ekki stóru orðin:

„Aumkunarvert uppátæki, sneypuför, óvitaskapur, fáheyrð illgirni, sökum ekki ráðherra um landráð.“

Margir sjálfstæðismenn eru vók og ættu frekar heima í Viðreisn og Samfylkingu

Arnar Þór segir að því miður virðist hluti sjálfstæðismanna lifa í þeim draumi að flóttamenn flokksins til Viðreisnar snúi aftur til baka og sættist við Sjálfstæðisflokkinn:

„Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn vók flokkur sem er að breytast í Viðreisn og Samfylkinguna. Hversu grátlegt sem það er, þá styður formaður flokksins Bókun 35. Með sama áframhaldi mun Guðrún Hafsteinsdóttir keyra flokkinn niður í 10% smáflokk.“

Margir hafa velt því fyrir sé á síðustu árum, hvort Þórdís Reykfjörð og Þorgerður Katrín séu ráðherrar Íslendinga eða ráðherrar einhverra erlendra stofnana. Þær ganga um og faðmast og kyssa alla ráðamenn í þessum heimshluta. Þær hafa verið að hvetja til stríðs og vopnakaupa og þær hafa stuðlað að því – ekki bara í orði heldur líka í verki, því báðar hafa lagt fram þetta frumvarp og með réttu hefði kannski átt að leggja fram kæru á hendur Þórdísi Kolbrúnu líka, því hún lagði fram þetta frumvarp tvisvar sinnum.

Það er hin kalda staðreynd að þetta er viðleitni til að framselja íslenskt vald til útlanda, til erlendrar stofnunar, Evrópusambandsins, sem seilist til yfirþjóðlegs valds. ESB vill takmarka fullveldi aðildarþjóðanna. Það er bara eitt vandamál: Ísland hefur aldrei gerst aðili að ESB.

Miðflokkurinn eini flokkurinn sem stendur í varnarbaráttunni á þingi

Arnar Þór segir einungis Miðflokkinn standa í varnarbaráttu fyrir stjórnarskrána á Alþingi:

„Mér er alveg sama hvaðan varnarbaráttan kemur, Miðflokkurinn er búinn að standa sig sem hetjur. Þetta er varnarbarátta upp á líf og dauða.“

Varðandi spurninguna um hvað tæki við ef Alþingi samþykkir að ganga gegn stjórnarskránni með samþykkt Bókunar 35 sagði Arnar:

„Verði þetta frumvarp samþykkt, þá tekur baráttan á sig nýja mynd. Þá er EES svo nærri okkur sem þjóð og svo nærri fullveldinu að ég sé ekki annað en að við verðum þá að fara í baráttuna fyrir því að fara út úr EES.“

Smelltu á spilarann hér að neðan til að hlýða á viðtalið.

Fara efst á síðu