Vara við vaxandi velferðarkostnaði og vilja tímabundna stöðvun fólksflutninga

Frá vinstri: Arnar Arinbjarnarson, Kristinn Sv. Helgason, Róbert Bragason. Arnar og Róbert eru stjórnarmenn í Samtökum skattgreiðenda.

Arnar Arinbjarnarson, Kristinn Sv. Helgason og Róbert Bragason gagnrýna stjórnvöld fyrir að bregðast ekki nægilega við vaxandi útgjöldum velferðarkerfisins vegna íbúa af erlendum uppruna. Þeir kalla eftir heildstæðu stöðumati og telja að tímabundin stöðvun fólksflutninga til landsins gæti gefið stjórnvöldum svigrúm til að ná betri tökum á stöðunni.

Í grein sinni, „Fjárhagsleg sjálfbærni velferðarkerfisins í hættu“, byggja höfundarnir á svari félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Miðflokksins. Þeir telja svarið veita ítarlegri upplýsingar um velferðarkostnað íbúa af erlendum uppruna en áður hafi komið fram í opinberri umræðu.

Meginniðurstaða þeirra er að útgjöldin hafi aukist svo hratt að sjálfbærni kerfisins sé stefnt í hættu.

Örorkutengdar greiðslur úr 1,3 í 16,6 milljarða

Samkvæmt tölum sem höfundarnir birta jukust örorkutengdar greiðslur Tryggingastofnunar til íbúa af erlendum uppruna úr 1,3 milljörðum króna árið 2010 í rúmlega 16,6 milljarða árið 2025. Þar undir falla meðal annars örorkulífeyrir, endurhæfingarlífeyrir og tengd viðbótarréttindi.

Höfundarnir segja þetta jafngilda tæplega 19 prósenta árlegum meðalvexti á tímabili þegar verðlag hafi að meðaltali hækkað um fjögur prósent á ári.

Árið 2025 hafi tæplega 4.600 íbúar af erlendum uppruna fengið örorkutengdar greiðslur, eða um 15 prósent allra viðtakenda. Hlutfallið hafi verið fimm prósent árið 2010.

Þeir benda jafnframt á að hlutfall fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjenda af heildarmannfjölda hafi aukist úr 8,95 prósentum í 21,7 prósent á sama tímabili.

Í samanburðarútreikningi höfundanna kemur fram að hefðu viðtakendur af erlendum uppruna fjölgað í sama hlutfalli og innflytjendum, hefðu þeir verið um 2.300 árið 2025. Á þeim forsendum áætla höfundarnir greiðslurnar 8,3 milljarða króna í stað 16,6 milljarða.

Benda á mikinn mun eftir upprunalöndum

Stærstur hluti örorkutengdra greiðslna til íbúa af erlendum uppruna fór samkvæmt greininni til fólks af evrópskum uppruna, rúmlega 10,2 milljarðar króna. Þar af fóru 4,8 milljarðar til íbúa frá Póllandi.

Höfundarnir vekja jafnframt athygli á ólíkri tíðni greiðslna meðal fólks á aldrinum 18–66 ára eftir upprunalöndum. Samkvæmt tölum þeirra var hlutfallið 28 prósent meðal íbúa ættaðra frá Marokkó, 26 prósent meðal íbúa frá Kósóvó og 19 prósent meðal íbúa frá Sýrlandi. Til samanburðar hafi það verið fjögur prósent meðal íbúa frá Póllandi og tvö prósent meðal íbúa frá Litháen og Úkraínu.

Þá segja þeir ellilífeyrisgreiðslur til íbúa af erlendum uppruna hafa aukist úr 419 milljónum króna árið 2010 í tæpa 5,8 milljarða árið 2025.

Vilja endurskoða reglur og eftirlit

Gagnrýni höfundanna beinist ekki aðeins að greiðslum Tryggingastofnunar. Þeir telja mikla fólksflutninga hafa aukið álag á mennta- og heilbrigðiskerfið, innviði, réttarvörslukerfið og ríkisfjármál.

Þeir kalla því eftir mati á heildaráhrifum fólksflutninga og benda á að velferðarútgjöld nái einnig til atvinnuleysisbóta, húsnæðis- og barnabóta og félagsaðstoðar sveitarfélaga.

„Það er orðið aðkallandi að stjórnvöld framkvæmi stöðumat á samtengingu mikilla fólksflutninga og áskorana lykilmálefnasviða samfélagsins,“ skrifa þeir.

Samhliða slíku mati telja höfundarnir að skynsamlegt gæti verið að stöðva fólksflutninga til landsins tímabundið. Þeir vilja einnig endurskoða regluverk, stjórnsýslu og eftirlit með aðgangi íbúa af erlendum uppruna að velferðarkerfinu, með það að markmiði að tryggja sjálfbærni þess.

Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason eru stjórnarmenn í Samtökum skattgreiðenda. Kristinn Sv. Helgason er sérfræðingur í opinberri stefnumótun.