Eva Vlaardingerbroek varar hvíta við miklum lýðfræðilegum breytingum í heimalöndum sínum.
Eva Vlaardingerbroek var nýlega í viðtali hjá Remix News og varar íbúa Evrópu alvarlega við því að ef ekki verði brugðist við öllum fólksinnflutningi, þá munu innfæddir verða að minnihluta í heimalöndum sínum.
Þú hefur talað mikið um réttindi hvítra og útskiptingu hvítra. Auðvitað hefur það leitt til ásakana um rasisma. Hvernig takast íhaldsmenn á við þennan vanda, þeir vilja ekki að sér verði skipt út í heimalöndum sínum, en vilja heldur ekki að á þá sé ráðist með þessu hugtaki?
Það er ómögulegt. Málið er að þetta er ómögulegt. Þannig að maður verður að velja hvoru megin maður vill vera. Auðvitað verður ráðist á þig ef þú segir: „Heyrðu, þessi heimsálfa, Evrópa, hefur að mestu leyti verið hvít alla söguna og núna hafa nokkrir embættismenn ákveðið gegn vilja fólksins á tímabili einnar kynslóðar, að við eigum allt í einu að verða minnihluti. Af hverju erum við sammála því, eða af hverju leyfum við þessu að gerast?“ Ef þú segir þetta, þá verður ráðist á þig.
Svo valkosturinn sem þú hefur er að segja ekki neitt og láta það gerast, svo þitt er valið, ég hef tekið mína ákvörðun. Ég held að það séu auðvitað til margar leiðir til að verja sig gegn þessari fáránlegu árás og ég er viss um að þeir muni segja um mig að ég sé enn hræðilegur rasisti. Nei, það er ekki satt. Ég held ekki að neinn kynþáttur sé æðri öðrum. Ég held bara að minn sé heldur ekki óæðri öðrum.
Það þarf því ekki að benda á mig sem rót alls ills, eins og nýmarxíska kynþáttakenningin gerir. Ég þarf ekki að verða minnihlutahópur í mínu eigin landi, eins og Joe Biden sagði að væri „gott mál“, væri „styrkur okkar“. Nei, hvers vegna í raun og veru? Hver er rasistinn hér? Útskýrðu fyrir mér hvers vegna við höfum ekki tilverurétt, hvers vegna við megum ekki vera í meirihluta í álfunni, í löndunum þar sem við höfum verið í meirihluta að eilífu? Útskýrðu það fyrir mér. Snúðu spurningunni við.
Margir hægrisinnaðir flokkar hér eru tilbúnir að tala um ólöglega innflytjendur en ófúsir að fjalla um löglega innflytjendur. Sumir íhaldsflokkar stuðla jafnvel að löglegum innflytjendum. Hvað finnst þér um þessa þróun?
Vandamálið er auðvitað að þegar verið er með fullt af ólöglegum innflytjendum og merkimiðinn „löglegur“ er settur á þá, þá breytist ekkert. Við höfum séð það á undanförnum árum að ólöglegur innflytjendaflutningur hefur verið gerður löglegur, þannig að ákveðnum einstaklingum hefur verið gert auðvelt að koma til Evrópu á meðan aðrir hafa ekki átt eins greiða leið í gegnum hefðbundna kerfið. Ég held að þetta vandamál sé til staðar í Bandaríkjunum að vissu leyti líka, það er frekar erfitt að flytja löglega til Bandaríkjanna, en auðveldara að komast ólöglega yfir landamæri Mexíkó.
Svo ef við skoðum vandamálið með innflytjendur, þá held ég að það verði að skoða lýðfræðilegar breytingar. Þess vegna tók ég þennan sprett í dag á sviðinu. Við verðum að horfa á raunveruleikann frekar en hugtakið sem notað er um innflytjendur. Erum við sammála því sem er að gerast hér, því sem er að gerast með þessum hröðu breytingum á lýðfræðilegri samsetningu okkar? Ef svarið er nei, þá þarf eitthvað að breytast. Málið er það einfalt.
Þú snerist til kaþólskrar trúar fyrir um það bil ári síðan. Hvernig hefur kaþólsk trú þín haft áhrif á stjórnmál þín, ef einhver?
Hún hefur haft áhrif á stjórnmál mín í þeim skilningi að trú mín hefur orðið svo stór hluti af lífi mínu að mér finnst að það yrði algjörlega óheiðarlegt og rangt ef ég myndi aðskilja trúna frá stjórnmálaskilaboðum mínum. Þar sem hún hefur svo mikil áhrif á mig sem manneskju, held ég að fólk taki eftir því, að ég læt hana síast miklu meira í gegn í ræðum mínum og umræðum en ég gerði kannski áður. Þannig að það blæs lífi í hugmyndir mínar og getu til að stíga á sviðið. Ég bið til Guðs áður en ég fer á svið, það gerði ég ekki fyrir nokkrum árum. Það róar mig að biðja Guð um leiðsögn og hjálp og gefur mér styrk að fylgja vilja hans á sviðinu.
Hvað finnst þér um þá staðreynd að flestir hægri flokkar í Norður-Evrópu forðast trúarleg skilaboð í flokksstefnu sinni? AfD, Svíþjóðardemókratar og margir hollenskir flokkar halda þessu í bakgrunninum, kannski vegna þess að fólk er að yfirgefa kirkjuna og margir ungir eru að yfirgefa hana. Hvernig ná íhaldsmenn til ungs fólks í Norður-Evrópu og halda samtímis sannfæringu sinni?
Ég tel að það séu mikil mistök að sleppa trúarbrögðum og kristinni trú úr stjórnmálalegum skilaboðum, sérstaklega þegar verið er að ná til unga fólksins. Ég held að við höfum verið heilaþvegin til að trúa því að ef við prédikum fagnaðarerindið, ef við áköllum Drottin okkar í ræðum okkar, ef við tölum stolt og opinskátt um þá staðreynd að við erum kristin, þá munum við hræða unga fólkið burtu. Hið gagnstæða tel ég vera hið rétta.
Ég held að það sé siðferðilegt tómarúm sem annað hvort verður fyllt með loftslagsbrjálæði eða vók-bulli eða einhverri annarri byltingarkenndri vinstri sinnaðri hugmyndafræði, – eða það verður fyllt með Heilögum Anda. Þannig að við höfum tvo valkosti og ég held að fólk sé að leita að sannleikanum. Fólk er að leita að svörum og besta gjöfin sem þú getur gefið einhverjum er að beina þeim að sannleikanum frekar en að dansa í kringum hann og sykurhúða hann, sem ég held að við höfum verið að gera í Norðvestur-Evrópu í langan tíma. Sjáið hvert það hefur leitt okkur.