Utanríkisráðuneytið í engum vafa: Ef já vinnur verður samið um inngöngu Íslands í ESB

Áróðurinn um að alls ekki sé verið að kjósa um aðild Íslands að ESB er að æra landsmenn. Öllum er sagt að hér sé einungis verið að greiða atkvæði um að halda aðildarviðræðunum áfram. Allir fá að vita, bæði hjá Landskjörstjórn og ríkisstjórninni að það sé ALLS EKKI VERIÐ AÐ KJÓSA UM INNGÖNGU Í EVRÓPUSAMBANDIÐ.

Ómerkilegri falsáróður hefur ekki sést í manna minnum á landinu. En mitt í öllum falsáróðrinum ratar hin blinda hæna utanríkisráðuneytisins á sannleikskorn. Á sérstakri síðu um þjóðaratkvæðið hjá utanríkisráðuneytinu má lesa eftirfarandi:

„…Þá liggur fyrir að þjóðin getur ekki tekið afstöðu til aðildar nema að aðildarviðræðum verði haldið áfram og þeim lokið með samningi um aðild Íslands að ESB…”

Hér stendur það svart á hvítu að já mun þýða samning um aðild Íslands að Evrópusambandinu:

„og þeim (aðildarviðræðunum) lokið með samningi um aðild Íslands að ESB.”

Þetta er ein ómerkilegasta aðför að lýðræðinu í landinu að ljúga svona að fólki og tala um að þeir sem nefna Lissabonsáttmálann eins og Ólafur Ragnar Grímsson gerði á fundi Dr. Carls Baudenbacher í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll séu rugludallar. Ólafur Ragnar Grímsson benti á að enginn af ráðherrum ríkisstjórnarinnar nefndi Lissabonsáttmálann á nafn og virðist sem stjórnarskrá ESB skipti ríkisstjórnina engu máli og utanríkisráðherrann haldi að 27 ríki sambandsins muni krjúpa fyrir Íslandi.

Allt er þetta bara til að slá ryki í augu fólks. Ríkisstjórninni og sérstaklega utanríkisráðherranum er mætavel kunnugt um Lissabon sáttmálann og reglur ESB. Hún ætlar bara að semja um hvað sem er svo Ísland verði örugglega tekið með sem aðildarríki. Alla vega góða stöðu fyrir sjálfa sig ef Íslendingar myndu segja nei og senda Viðreisnn í ævilangt frí frá Alþingi í næstu kosningum.