Uppfært: Athugasemd: Þau mistök urðu við birtingu greinar að nafni Jóhannesar Loftssonar var ruglað saman við nafn Jóhanns Elíassonar sem einnig skrifar á blog.is. Sást þó á hlekk greinar að hún er að sjálfsögðu skrifuð af Jóhannesi Loftssyni verkfræðingi og engum öðrum. Er það hér með leiðrétt og beðist afsökunar á mistökunum.
Töluvert hefur verið rætt um íslam og múslímsk trúarbrögð í kjölfar greina Stefáns Stefánssonar á Morgunblaðinu sem birt hefur myndir af mönnum veifandi byssum á Íslandi. Jóhannes Loftsson spyr, hvort Stofnun múslíma uppfylli örugglega íslensk lög þegar borið er saman boðaðar dauðarefsingar við íslensku stjórnarskrána og vísar meðal annars í grein Stefáns Stefánssonar um heimsókn pakistanska trúarleiðtogans Muhammad Taqi Usmani sem er eins skorinn út steingerðri fornöld með dauðarefsingum sem m.a. eru framkvæmdar með grjótkasti.
Jóhannes Loftsson skrifar:
Uppfyllir Stofnun múslima örugglega íslensk lög um trúfélög?
Heimsókn pakistanska trúarleiðtogans Muhammad Taqi Usmani í boði Stofnunar múslima til að halda trúarlegt erindi í moskunni þeirra vekur spurningar.
Í stjórnarskrá Íslands segir eftirfarandi um trúfélög:
63. gr.
“Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu.”
Þar sem um stjórnarskrá Íslands er að ræða, er með “góðu siðferði eða allsherjarreglu” auðvitað átt við gott íslenskt siðferði og íslenska allsherjarreglu.
Í moskum fara fram trúarlegir fyrirlestrar þar sem fyrirlesarar boðar sína túlkun á íslam.
Meðal helstu bárráttumálum Umsami má nefna:
- Dauðarefsingu fyrir trúarfráhvarf frá Íslam.
- Að fólk sé grýtt til bana fyrir hjúskaparbrot.
- Andstaða við að afglæpavæða samkynhneigð.
- Hvatt til hernaðaraðgerða gegn Ísrael.
- Fagnaði yfirtöku talibana á Afganistan.
- Tók þátt í að semja qisas- og diyat-lögin í Pakistan, sem gerðu fjölskyldum morðfórnarlamba kleift að fyrirgefa morðingjum eða samþykkja blóðpeninga. Þessi lög gerðu mörgum gerendum heiðursmorða kleift að komast hjá refsingu.
Hvaða íslenska siðferði og íslensku allsherjarreglu ætli þessi boðskapur samræmist?
… nema hann hafi kannski bara verið að tala um veðrið í erindi sínu.
Ætli íslensk yfirvöld séu nokkuð að fylgjast með hvað fer fram í þessum nýju “trúfélögum” sem eru að þiggja opinbert fé?
