Ummæli Schneiders biskups um íslamavæðingu fá nýja dreifingu eftir landamærakreppuna í Ceuta

Biskup Athanasius Schneider

Ummæli Athanasiusar Schneiders, kaþólsks aðstoðarbiskups í Astana í Kasakstan, um „íslamvæðingu Evrópu“ hafa fengið nýja dreifingu á samfélagsmiðlum í kjölfar umfangsmikilla fólksflutninga yfir landamæri Marokkó og spænsku borgarinnar Ceuta. Myndskeiðið er frá árinu 2025 og ummælin því ekki bein viðbrögð biskupsins við atburðunum í sumar.

Samkvæmt LifeSiteNews deildu notendur á samfélagsmiðlinum X myndskeiðinu samhliða myndum af fólki sem fór yfir landamærin til Ceuta í lok júlí. Þar lýsir Schneider umfangsmiklum fólksflutningum múslima til Evrópu sem innrás og heldur því fram að þeir tengist pólitískum áformum um að veikja kristna menningu álfunnar.

„Nú verðum við vitni að innrás. Þetta eru ekki flóttamenn — nei — þetta er innrás sem felur í sér stórfellda íslamvæðingu Evrópu,“ segir Schneider í myndskeiðinu, samkvæmt fréttinni.

Hann heldur síðan áfram:

„Þetta er því alþjóðleg pólitísk áætlun hinna valdamiklu í heiminum: að eyðileggja Evrópu menningarlega og trúarlega — að lokum að eyðileggja kristni í Evrópu.“

Hefur áður kallað eftir takmörkunum á innflytjendastraumi

Schneider hafði sett fram sambærileg sjónarmið í viðtali sem LifeSiteNews birti 20. mars 2025. Þar sagði hann valdamikla aðila nýta fólksflutninga til að breyta menningarlegum einkennum evrópskra þjóða og draga úr áhrifum kristni í stjórnmálum og opinberu lífi.

Hann hvatti stjórnmálamenn og aðra áhrifamenn til að setja fólksflutningum skorður og kallaði eftir endurnýjaðri áherslu á þjóðrækni og kristna menningararfleifð.

Schneider gegnir embætti aðstoðarbiskups í Astana og talar í þessum viðtölum út frá eigin mati á þróuninni í Evrópu. Hann er ekki talsmaður spænskra kirkjuyfirvalda eða Vatíkansins í málinu.

Tugir þúsunda komu til Ceuta

Ceuta er spænsk sjálfstjórnarborg á norðurströnd Afríku og á landamæri að Marokkó. Dagana 30.–31. júlí kom þangað mikill fjöldi fólks án heimildar, meðal annars á sundi fram hjá landamæratálmum við ströndina.

Spænsk stjórnvöld áætluðu upphaflega að um 50.000 manns hefðu komið inn í borgina, en borgarstjórnin nefndi allt að 60.000. Spænska ríkisútvarpið RTVE greindi 31. júlí frá að minnsta kosti 57 dauðsföllum og því að stór hluti fólksins hefði þegar snúið aftur til Marokkó. Tölurnar voru síðar endurskoðaðar. Í samantekt rannsóknarþjónustu breska þingsins er vísað til áætlunar spænskra stjórnvalda um um 72.000 komur. Þar kemur einnig fram að borgarstjóri Ceuta hafi síðar sagt að að minnsta kosti 100 manns hefðu látist.

Daily Mail greindi frá átökum, þegar spænskir íbúar fóru út á götur með spænska fána og reyndu að stugga innrásarmönnum burtu. Samtök lögreglumanna Jupol tilkynnty að þeir gætu ekki ráðið við stöðuna vegna „skorts á mannafla og búnaði.“

Spænsk stjórnvöld sendu liðsauka hers og lögreglu til borgarinnar og hófu uppsetningu fljótandi landamæratálma. Pedro Sánchez forsætisráðherra lýsti atburðunum sem broti gegn friðhelgi spænsks yfirráðasvæðis en hefur síðar gefið eftir og veitt leyfi fyrir flutningi stór hóps til meginlandsins. Bætist það við sakaruppgjöf ríkisstjórnar hans til hundruð þúsunda ólöglegra flóttamanna í landinu.

Landamæraeftirlit og mannleg reisn í kaþólskri kenningu

Í grein LifeSiteNews er vísað til félagskenningar kaþólsku kirkjunnar um rétt ríkja til að stjórna landamærum sínum.

Í fræðsluefni bandaríska kaþólska biskupasambandsins, USCCB, kemur fram að ríki séu ekki skyldug til að taka við öllum sem óski eftir að flytja þangað. Þeim sé heimilt að takmarka innflytjendastraum með hliðsjón af almannaheill.

Schneiders tengir fólksflutningana við ásetning um að veikja kristna arfleifð Evrópu og ýmsir aðrir klerkar kaþólsku kirkjunnar tekið undir með honum.