Umbótaflokkur Nigel Farage mælist núna stærsti flokkur Bretlands

Önnur þróun varð í kosningunum í Bretlandi en í mörgum öðrum löndum í Evrópu. Á meðan flestar þjóðir snérust til hægri í pólitíska litrófinu, þá vann Verkamannaflokkurinn undir forystu Keir Starmers forsætisráðherra mikinn sigur í Bretlandi á vinstra kanti litrófsins.

En aðeins sjö mánuðum eftir kosningarnar er ríkisstjórn Starmers á leiðinni í stórslys og ef hlutirnir halda áfram á þeirri braut, þá er ekki ólíklegt að hann neyðist til að boða til þingkosninga langt fyrir settan tíma.

Að hækka skatta á óbilgjarnan hátt, skera niður þjónustu, láta hættulega glæpamenn ganga lausa, fangelsa fólk fyrir athugasemdir á samfélagsmiðlum, leyfa óheftan fjöldainnflutning og vanbúið öryggi… listinn yfir mistök eftir mistök heldur áfram. Að ekki sé minnst á endalausu hneykslismálin….

Með hliðsjón af öllu þessu, þá er það eðlilegt að aðrir flokkar stækka á kostnað Verkamannaflokksins. Núna mælist Umbótaflokkur Nigel Farage í fyrsta skipti stærsti stjórnmálaflokkur Bretlands í skoðanakönnunum.

„Find Out Now“ skrifar:

„Nýja skoðanakönnunin sýnir kapphlaup milli þriggja stærstu flokkanna, þar sem Umbótaflokkurinn er í fyrsta sinn með skýra forystu….Mikilvægasta breytingin er vöxtur Umbótaflokksins sem eykur fylgið úr 22% í 26%. Athyglisvert er að þeir hafa ekki tapað fylgi í neinum skoðanakönnunum okkar síðan í nóvember.“

Fara efst á síðu