Úkraínu vantar 23 milljarða evra til viðbótar – þrýstingur eykst á Evrópu

Úkraínustjórn segir sig vanta 23 milljarða evra til viðbótar, jafnvirði um 3.250 milljarða íslenskra króna, til þess að standa undir varnarkostnaði út árið. Þetta kemur þrátt fyrir að Evrópusambandið hafi þegar samþykkt 90 milljarða evra lán til Úkraínu fyrir árin 2026 og 2027. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir lýsti því nýlega yfir að Ísland myndi standa staðfast við hlið Úkraínu og styðja þá í stríðinu. Ætlar hún að fylla gatið í fjárlögum Úkraínu?

Sænski miðillinn Samnytt greinir frá málinu og segir nýja fjárþörfina hafa komið ýmsum evrópskum ríkisstjórnum á óvart. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti greindi evrópskum leiðtogum frá stöðunni þegar þeir komu til Kænugarðs í tengslum við þjóðhátíðardag Úkraínu í ágúst.

Samkvæmt honum stendur varnarmálaráðuneytið frammi fyrir 27 milljarða dala, eða um 23 milljarða evra, fjármögnunargati sem verði að fylla eigi Úkraína að geta haldið núverandi hernaðaraðgerðum áfram.

Sjálfstæðar heimildir staðfesta fjárhæðina. Euronews greindi frá því 26. ágúst að Zelensky hefði óskað eftir því að ESB flýtti útborgunum úr 90 milljarða evra láninu til að mæta fjárþörfinni.

Vill fá peninga ársins 2027 strax

Lán ESB skiptist samkvæmt núverandi áætlun í tvo 45 milljarða evra hluta, annars vegar fyrir árið 2026 og hins vegar 2027. Úkraínustjórn vill nú að hluti peninganna sem ætlaðir eru fyrir næsta ár verði greiddur út strax.

Það leysir hins vegar ekki undirliggjandi vandann. Verði fjármunir ársins 2027 notaðir nú minnkar það fé sem verður tiltækt á næsta ári, verði stríðið þá enn í fullum gangi.

Framkvæmdastjórn ESB hefur tekið varlega í hugmyndina og segir viðræður við Úkraínu halda áfram.

Fjármögnunargatið skýrist meðal annars af því að Úkraína notaði fyrr á árinu fjármuni sem upphaflega voru ætlaðir síðari hluta ársins. Útgjöldin tengjast meðal annars vopnakaupum, launum hermanna og félagslegum greiðslum.

Hluti fjárins, um sex milljarðar evra, á jafnframt að fara í fyrirframgreiðslur vegna hergagna sem afhenda á árið 2027.

Kostnaðurinn heldur áfram að aukast

Úkraínustríðið er nú á fimmta ári og fjárþörf landsins heldur áfram að aukast.

Samkvæmt Samnytt hafa hernaðarútgjöld Úkraínu fyrstu átta mánuði ársins aukist um meira en 17% frá sama tímabili í fyrra.

Rússneskar árásir hafa jafnframt haft áhrif á tekjur úkraínska ríkisins með árásum á iðnað, orkumannvirki og útflutningsleiðir.

Reuters greindi í þessari viku frá því að fjárlagahalli Úkraínu væri nú yfir 32 milljörðum dala og að landið þyrfti áfram á erlendum fjárstuðningi að halda til að halda ríkisfjármálunum gangandi og standa undir félagslegum útgjöldum.

Samhliða þessu kallar Úkraína eftir auknum framlögum til vopnakaupa.

Úkraínski varnarmálaráðherrann sagði 8. september að landið væri meðal annars að semja um kaup á um 1.000 Patriot-loftvarnarflaugum með aðstoð bandalagsríkja og fjármuna úr ESB-láninu.

Evrópa ber sífellt stærri hluta reikningsins

Kristrún Frostadóttir þarf meiri peninga til stríðsrekstursins í Úkraínu.

Staðan hefur breyst verulega eftir að Bandaríkin drógu úr beinum fjárstuðningi sínum við Úkraínu. Evrópuríkin bera því sífellt stærri hluta kostnaðarins.

ESB samþykkti 90 milljarða evra lánið með það að markmiði að fjármagna stóran hluta af þörfum Úkraínu árin 2026 og 2027.

En þegar er orðið ljóst að sú upphæð kann ekki að duga.

Financial Times greinir nú frá því að Úkraína standi frammi fyrir 27 milljarða dala fjármögnunargati á þessu ári og enn stærri fjárþörf á næsta ári. ESB hefur því hafið á ný umræður um hvort hægt sé að nýta frystar eignir rússneska seðlabankans. Um 210 milljarðar evra af rússneskum eignum eru frystar innan ESB, mest hjá fjármálafyrirtækinu Euroclear í Belgíu.

Svíar vilja nota frystar eignir Rússa

Svíþjóð hefur verið meðal þeirra ríkja sem vilja endurvekja hugmyndina um að nýta rússnesku eignirnar til að fjármagna Úkraínu. Það gæti dregið úr þeim fjárhagslega þrýstingi sem annars lendir beint á ríkissjóðum ESB-ríkjanna.

Belgía hefur hins vegar lagst gegn því að gengið verði að eignunum án mjög sterkra lagalegra trygginga. Belgísk stjórnvöld óttast bæði lagalegar afleiðingar og hugsanlegar gagnaðgerðir Rússa.

Rússneski seðlabankinn hefur þegar höfðað mál gegn Euroclear vegna frystingar eignanna. Þar stendur ESB því frammi fyrir erfiðri stöðu: Úkraína þarf meira fé núna, en ein skjótasta lausnin er að færa fjármuni ársins 2027 fram til þessa árs.

Það myndi hins vegar aðeins færa fjármögnunarvandann fram í tímann.

Á sama tíma eykst þrýstingurinn á ríkisstjórnir Evrópu sem þurfa bæði að fjármagna eigin stórauknu varnarmálaútgjöld og halda áfram fjárhagslegum og hernaðarlegum stuðningi við Úkraínu.

Eftir því sem stríðið dregst lengur á langinn verður spurningin því sífellt áleitnari: Hversu stór verður reikningurinn að lokum – og hver á að greiða hann?