Einn af erfiðleikunum við að skilja íslam eru þær mótsagnir sem þar koma fram. Íslam er kallað trúarbrögð friðarins, en afhöfðanir undir hrópinu „Allahu akbar“ eru algengt fréttaefni. Í Kóraninum er að finna vers sem boða ofbeldisleysi, eins og „látið enga þvingun ríkja í trúmálum“, sem virðast stangast á við vers sem hvetja til ofbeldis gegn þeim sem ekki eru múslimar.
Svo er það sú staðreynd að Kóraninn skiptir heiminum í trúaða og kafíra (vantrúaða). Allah elskar múslima en hatar kafíra. Reyndar er yfirlýst markmið Kóransins að skapa heim þar sem engir kafírar eru til.
Siðfræði íslams, sem byggir á þríleiknum (Trilogy), er breytileg eftir því hver á í hlut. Múslimi á að koma fram við annan múslima eins og fjölskyldu, en það má blekkja kafírana. Í Kóraninum eru tólf vers sem segja að múslimi sé aldrei sannur vinur kafíra. Ekki má hneppa múslima í ánauð, en það má hneppa kafíra í þrældóm.
Það eru líka tveir ólíkir Múhameðar. Þegar hann var trúarkennari í Mekka einskorðaðist ofbeldið við orðaskipti og hnefahögg. En þegar hann fór til Medínu varð hann stjórnmálamaður og jafnframt stríðsmaður í heilögu stríði (jihadist).

Vantrúaðir (kafírar) spyrja: „Hvort er hið raunverulega íslam?“ Svarið er að hvort tveggja er rétt. Íslam byggir á andstæðum fullyrðingum – annars vegar um kærleiksríka trúarlega breytni og hins vegar um herskáa og ofbeldisfulla hegðun – allt eftir því hvað þykir viðeigandi hverju sinni. Lögmálin um tvíhyggju og undirgefni eru grundvallarþættirnir í kenningakerfi íslams.
Bill Warner Forseti og stofnandi, CSPII
Heimildir eru sóttar til CSPII Alþjóðlegra miðstöðvar rannsókna á hinu pólitíska íslam

