TVEIR RIFFLAR, SÁ ÞRIÐJI, TILRÆÐIÐ VIÐ TRUMP & KAMILLA SÍKÁTA

Það voru tveir rifflar að minnsta kosti sem skotið var á Trump, þriðji þegar Crooks var tekinn út. Sagan um eina skyttu; lone gunman er fals, lygi. Þetta sagði Chris Martensen, Phd. í þætti á fimmtudag 18. júlí. Martensen hefur hljóðgreint skotin. Efnislega sama og ég skrifaði mánudaginn 16. júlí, tveimur dögum eftir banatilræðið við Donald Trump. Þá þegar höfðu margir hlóðgreint skotin. Atburðarás liggur nú fyrir. Það þarf ekki að bíða mörg ár eftir Zapruder-filmu líkt og 1963 þegar John Kennedy var skotinn í Dallas og Lee Harvey Oswald var kennt um.

SKYTTUR NO. 1 & NO. 2

Martensen hljóðgreinir tíu skot. Þau koma 1.2.3 skot frá skyttu No. 1. Þá koma 1.2.3.4.5.6 skot af þakinu frá Crooks. Síðasta skot var 15,8 sekúndum eftir fyrsta skot. Það er frá skyttum Secret Service sem svöruðu ekki skothríðinni fyrr en hún var afstaðin! Byssukúla rýfur hljóðmúr fer á margföldum hljóðhraða og greinilegur munur er á byssum. Tilræðið gegn Trump er ríkistilræði stjórnar Biden. Á miðvikudaginn var Biden kominn með covid, nú er Kamala orðin forsetaframbjóðandi og FBI rannsakar tilræðið! Svona er kverkatakið á amerísku þjóðinni svakalegt. Á Íslandi er vitleysan bergmáluð af kjánum.

SAGAN HAFÐI VERIÐ SKRIFUÐ

Secret Service tryggði að fólk sá Crooks skríðandi á þakinu en löggæsla gerði ekkert með það. Sagan hafði verið skrifuð. BBC tók viðtöl við vitni um lone gunman sem þá lá dauður á þakinu skotinn milli augna. Það voru slíkir öryggisbrestir að ómöguleiki er að um tilviljun sé að ræða. Fyrirtækið Austin Private Wealth LCC í Texas tók skortstöðu í 12.000.000 hlutum DJT í Truth Social viku fyrir tilræði sem rann út daginn fyrir tilræðið. Follow the Money. Blackrock, Vanguard eru með stærstu hluthöfum, Soros og Rotschilda. Ef tilræðið hefði heppnast þá hefði hagnaður numið milljörðum dollara og Truth Social samfélagsmiðill Trump hefði hrunið eins og spilaborg. Austin PW segir um mistök að ræða; clerical error að baki tilboðinu. Crooks hafði leikið í auglýsingu Blackrock sem finnst það í yfirlýsingu ömurlegt! Allir vestrænir fjölmiðlar segja að Thomas Matthew Crooks sé einmana úlfur; lone wolf. Það er logið og logið og fólk lætur ljúga að sér og ljúga! Kamilla með frelsiskyndil síkát! Allt fór að plani nema Donald Trump snéri sér á sama augnabliki og launskyttan tók í gikkinn og riffilkúlan fór í eyrað. Því hafði verið spáð …

Fara efst á síðu