Tucker Carlson biður Trump afsökunar á ummælum sínum

Trump forseti sagði á miðvikudag að Tucker Carlson hefði hringt í hann til að biðjast afsökunar á ummælum sínum um Íran. Tucker Carlson ræddi við Steve Bannon um átök Írans og Ísraels í þættinum „Stríðsherbergið“ (sjá X að neðan).

Síðastliðinn föstudag sprengdi Ísrael kjarnorkuvopnastöðvar í Teheran og margir af kjarnorkuvísindamönnum Írans og yfirmönnum hersins drápust í árásinni. Íran brást við með því að gera eldflaugaárásir á Tel Aviv. Bandaríkin aðstoðuðu Ísrael með því að hlera eldflaugar Írans.

Á mánudagskvöld stytti Trump forseti heimsókn sína á fund G7-ríkjanna í Kanada og sneri aftur til Washington til fundar við Þjóðaröryggisráðið. Orðrómur segir að Bandaríkin munu blanda sér í stríðið til að koma í veg fyrir að Íran nái að búa til kjarnorkuvopn.

Tucker Carlson sagði við Bannon að ef Bandaríkin myndu dragast inn í stríðið við Íran gæti það bundið enda á forsetatíð Trumps. Bar Tucker það saman við stríð George W. Bush gegn Írak þar sem fullyrt var að Írak hefði „gereyðingarvopn.“

Tucker Carlson tók einnig viðtal við öldungadeildarþingmanninn Ted Cruz og gagnrýndi hann fyrir að vilja stjórnskipti í Íran samtímis sem Carlson gagnrýndi forsetann harkalega.

Trump forseti svaraði gagnrýni Tuckers í færslu á Truth Social:

„Getur einhver útskýrt fyrir klikkaða Tucker Carlson að Íran MÁ EKKI EIGNAST KJARNVOPN!“

Á miðvikudag sagði Trump forseti að Tucker Carlson hefði hringt í hann til að biðjast afsökunar. Trump sagði:

„Tucker er fínn náungi. Hann hringdi og baðst afsökunar … því honum fannst hann hafa sagt hluti sem var ofaukið. Þeir sem halda að það sé í lagi að Íran eignist kjarnorkuvopn, þeir ættu að andmæla mér, en engum finnst það í lagi! Ég vil heldur ekki fara í stríð! Ég sækist ekki eftir stríði!“

Fara efst á síðu