Fyrirtækið Meta sem á bæði Facebook og Instagram hefur samþykkt uppgjör við Donald Trump Bandaríkjaforseta sem kærði fyrirtækið fyrir að hafa lokað reikningum hans á Facebook og Instagram ár 2021. Verður Meta að greiða Bandaríkjaforseta 25 milljónir dollara.
Fulltrúi Meta staðfestir uppgjörið að sögn The Wall Street Journal. Meta á að greiða Donald Trump 25 milljónir dollara í skaðabætur samsvarandi rúmlega þremur og hálfum milljarði íslenskra króna.
Trump stefndi tæknifyrirtækinu Meta, eiganda Facebook og Instagram, árið 2021 fyrir að hafa lokað Facebook og Instagram reikningum Trumps, vegna færslu Trumps í tengslum við atburðina í Capitol þann 6. janúar 2021.
Af þessum 25 milljónum dollara munu 22 milljónir renna til forsetabókasafns Trumps. Eftirstöðvarnar, þrjár milljónir dollara, standa straum af málskostnaði og renna til annarra stefnenda í málinu.