Uppfært (leiðrétt: Mike Pompeo er fv. forstjóri CIA): Trump forseti varaði öldungadeildarþingmanninn Lindsey Graham og Mike Pompeo, fyrrverandi forstjóra CIA, fyrir að fara til Úkraínu og kynda undir áframhaldandi stríði gegn Rússlandi.
Trump fékk spurninguna frá fréttamanni hvað honum fyndist um að Lindsey Graham og Mike Pompeo væru í Úkraínu til að hvetja Úkraínumenn að halda áfram að berjast. Trump varaði Lindsey Graham og Pompeo við því að þeir ættu að gæta tungu sinnar:
„Þeir verða að vera mjög varkárir með það sem það segja. Orðr þeirra gætu komið þeim í mikil vandræði.“
Nýlega tilkynnti Volodymyr Zelensky að 117 drónar hefðu verið notaðir í árás í Rússlandi sem eyðilagði tugi „Dómsdags“ sprengjuflugvélar og aðrar flugvélar.
Trump forseta var ekki tilkynnt um árásina fyrr en eftir að hún átti sér stað svo hann gæti ekki reynt að koma í veg fyrir árásina.
Öldungadeildarþingmaðurinn Lindsey Graham var í Úkraínu aðeins tveimur dögum fyrir árásina og fagnaði fréttum af árásinni.
Hvað sagði Lindsey Graham við Zelensky í heimsókninni til Úkraínu í síðasta mánuði?
Mike Pompeo fyrrum forstjóri CIA fór einnig til Úkraínu skömmu fyrir árásina á Rússland.
Samtímis og Trump þrýsti á friðarviðræður í Úkraínustríðinu fór Mike Pompeo tá öryggisráðstefnu í Odessa í Úkraínu til að þrýsta á „fullkominn sigur“ yfir Rússlandi daginn áður en Úkraína gerði drónaárás á flugvélarnar í Rússlandi.
Steve Bannon kallar eftir því að Lindsay Graham verði handtekinn ef hann hættir ekki að ferðast til Kænugarðs á bak við Trump til að vinna í skuggastjórn fyrir Zelenskí.