Wilmore og Williams eru strönduð í geimnum. Núna hefur Musk fengið verkefnið að koma þeim aftur til jarðar.
Butch Wilmore og Suni Williams flugu upp í alþjóðlegu geimstöðina í vikuferð um borð í Starliner Boeing vél fyrir átta mánuðum síðan. Þótt að NASA hafi lýst því yfir, að geimfararnir séu ekki „strandaðir“ í geimnum, þá hafa örlög þeirra orðið umtalsefni jarðarbúa. Upprunalega átti ferðin ekki að taka lengri tíma en eina viku.
Nú hefur Donald J. Trump, forseti Bandaríkjanna, ákveðið að nóg sé komið og flýtir ferlinu til að koma Wilmore og Williams aftur til baka jarðar. Er þetta bara eitt dæmi um tiltektir forsetans eftir fyrirrennarann í Hvíta húsinu sem skildi eftir sig skæðadrífu af óleystum vandamálum.
— Elon Musk (@elonmusk) January 29, 2025
New York Post greinir frá því að Elon Musk, forstjóri SpaceX og yfirmaður ráðuneytis skilvirkrar stjórnsýslu, hafi sagt í færslu á samfélagsmiðlum að Donald Trump forseti hafi beðið hann um að bjarga Butch Wilmore og Suni Williams, sem hafa verið í geimnum síðan í júní en upphaflega átti geimferðin einungis að taka eina viku.
Geimfararnir tveir frá NASA fóru til alþjóðlegu geimstöðvarinnar í Starliner sem var fyrsta flug Boeings út í geiminn. Starliner var snúið tómu til jarðar eftir vandamál með helíumleka og þrýstivandamál sem gerði að geimflaugin var ekki talin örugg til að flytja geimfarana aftur til jarðar.
The @POTUS has asked @SpaceX to bring home the 2 astronauts stranded on the @Space_Station as soon as possible. We will do so.
— Elon Musk (@elonmusk) January 28, 2025
Terrible that the Biden administration left them there so long.