„Christian minn skal ekki hafa dáið til einskis,“ skrifar Johan Zedig til Mette Frederiksen.
Hinn 31 árs gamli Afríkumaður sem varð sænska lögreglumanninum Christian Zedig að bana í Danmörku slapp með eins árs fangelsi og „banni við að sækja næturklúbba“ í Danmörku. Nú vill faðir Zedigs að Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, komi til Svíþjóðar og útskýri hina vægu refsingu. Opið bréf Johans Zedig, sem birt hefur verið á samfélagsmiðlum, fer hér á eftir í heild:
Opið bréf Johans Zedig til Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur:
Það eru takmörk fyrir öllu. Þá verður maður annaðhvort að standa við þau eða útskýra þau.
Ég heiti Johan Zedig og er faðir Christians Zedig, sem var sleginn niður/myrtur í Kaupmannahöfn í Danmörku.
Christian var lögreglumaður. Hann sór þess eið að standa vörð um réttarkerfið sem við höfum hér í Svíþjóð og er væntanlega sambærilegt því danska.
Christian greip inn í þegar þarna var fólk sem hafði komið gagngert til að stofna til ófriðar. Hann reyndi að koma á ró meðan á fótboltaleiknum stóð.
Þessi maður sem sló hann, og á sér sögu um ofbeldi, vildi bara fá útrás fyrir innri árásarhneigð sína. Um það liggja þegar fyrir gögn og örugglega vitni líka.
Þannig að ég hugsa sem svo: Ég á ekki fleiri tár. Fjölskyldan berst í myrkri. Börn og barnabörn feta sig áfram óstyrkum skrefum í kerfi sem virðist hafa verið grafið undan.
Ég, faðir Christians, vil því hitta þig sem forsætisráðherra Danmerkur. Ég vil að við hittumst augliti til auglitis og að þú útskýrir þá fyrir mér hvernig hægt sé að dæma aðeins tólf mánaða fangelsi fyrir morð.
(Það var fyrirfram ákveðið að slá einhvern, og það vita allir…)
Ég sé fyrir mér að þú komir hingað, í Veröld Astridar Lindgren, til Mariannelund, Katthult, Bullerbyn… Þangað sem börnin fá ævintýrin sín, þar sem lífið byrjar…
Mette Frederiksen, ég bíð því eftir þér og svari frá skrifstofu ykkar/þinni.
Christian minn skal ekki hafa dáið til einskis.
Ég bíð þess að þú hafir hugrekki til að svara.
Með kveðju,
Johan Zedig
